Eftirfarandi tölvupóstur var sendur til aðildarfélaga SÍ í gær, 16. april 2023.
———–
Til aðildarfélaga SÍ
Stjórn SÍ hélt stjórnarfund, 13. apríl. Fundargerð þess fundar og eldri fundargerðir SÍ má finna hér: https://skak.is/skaksamband/fundargerdir/
Eftirfarandi liggur nú fyrir.
Stjórn SÍ vill koma eftirfarandi á framfæri við aðildarfélög sín.
- Landsmótið í skólaskák fer fram á höfuðborgarsvæðinu, 10.-11. júní. nánara fyrirkomulag undankeppna og úrslita kynnt í vikunni með nýrri reglugerð
- Aðalfundur Skáksambandsins fer fram 10. júní nk. á höfuðborgarsvæðinu. Formlegt fundarborð verður sent í síðasta lagi 10. maí.
- Landliðsflokkur Skákþings Íslands fer fram 15.-25. maí nk. á Ásvöllum í Hafnfarfirði. Flokkurinn er fullskipaður.
- Drög af dagskrá nokkurra móta síðsumars og í haust liggur fyrir og er hér ítrekað. Auðvitað þó með smá fyrirvörum.
- Áskorendaflokkur Skákþings Íslands (26. ágúst – 3. september)
- Íslandsmót kvenna (18.-24. september)
- NM skólasveita (29. september – 1. október)
- Íslandsmót skákfélaga (12.-15. október)
5. Stjórn SÍ staðfesti ákvörðun sína, sem tekin, var á milli funda, að tillögu landsliðsnefndar SÍ, að Helgi Ólafsson yrði landsliðseinvaldur í opnum flokki og Ingvar Þór Jóhannesson á í kvennaflokki á EM landsliða sem fram fer í Svartfjallalandi, 10.-21. nóvember 2023.
Kveðja,
Stjórn SÍ.
- Auglýsing -
















