Fjörið hélt áfram í Astana í dag þegar enn ein sigurskákin leit dagsins ljós. Aðeins tvö jafntefli hafa verið samin í skákunum sjö, hreint ótrúlegt!

Ian Nepomniachtchi hóf taflið enn og aftur á 1.e4 enda gafst það honum vel í fimmtu einvígisskákinni þar sem hann vann góðan sigur með hvítu mönnunum í spænska leiknum.

Ding Liren ákvað að koma á óvart með franskri vörn 1…e6 en hann tefldi þá byrjun mikið á sínum yngri árum. Nepo var eitthvað smeykur og greinilega ekki vel undirbúinn fyrir frakkann og valdi hið trausta Tarrasch afbrigði með 3.Rd2. Hann þorði heldur ekki í aðalafbriðgið þar sem hvítur tekur á d5 og drap þess í stað með riddara á d4.

Svartur virðist fá nokkuð þægilegt tafl í þessum stöðum. Ding lék svo …Rc6 leik sem sjálfur Yuri Dokhoian lék á sínum tíma.

Yuri Dokhoian var Kasparov til halds og trausts í áratugi.

Skákin fylgdi Dokhoian skákinni þar til Nepo lék fyrsta nýja leiknum, 12.Bd3 N

Hvítur undirbýr að sækja að kóngsvængnum en svartur á að hafa næginlega traustar varnir. Nepo hélt engu að síður áfram að hlaða í kóngssókn. Ding „mætti tilbúinn“

22…Rxf4!! var frábær skiptamunsfórn hjá Ding og hann hrifsaði frumkvæðið í kjölfarið.

Ding var með tök á einu opnu línunni, peð fyrir skiptamuninn og sterkan biskup. Auk þess voru hrókar hvíts ekki ógnandi

Þá kom eitthvað augnablik þar sem Ding virtist hreinlega frjósa. Hann vanmat stöðuna sína, ofmat stöðu andstæðingsins og eyddi allt of miklum tíma.

Hann átti 9 mínútur eftir í stöðunni að ofan en tveim leikjum síðar átti hann undir mínútu eftir og byrjaði að leika af sér. 32…Hd2?! var slakur en…

33…Hd3?? var bara afleikur. Nepo tók peðið 34.Dxc5 og svarta staðan hrundi, frostmark í svörtu stöðunni!

Skákin:

Einkunnabókin

Á morgun, miðvikudag, er frídagur nú þegar einvígið er hálfnað. Á fimmtudaginn hefur Nepo aftur hvítt þegar litirnir snúast í raun við í seinni hlutanum. Mikilvæg skák fyrir framvindu einvígsins.

- Auglýsing -