Efstu menn ásamt CAD-forkólfum.

Það mættu 46 galvaskir skákmenn á Bankann Bistro í Mosfellsbæ í gærkvöldi á síðasta mótið fyrir sumarfrí í mótaröð Bankans Bistro.

Sigurvegari mótsins var nýjasti stórmeistari okkar Íslendinga, Vignir Vatnar Stefánsson með 9.5v af 11 mögulegum – frábær sigur hjá Vigni en einungis Þorfinnssynir áttu breik í hann í gærkvöldi.

Jafnir í 2-3 sæti með 8.5v af 11 mögulegum voru Jón Viktor Gunnarsson & Hannes Hlífar Stefánsson.

Jafnir í 4-6 sæti með 7.5 af 11 mögulegum voru Bragi Þorfinnsson, Örn Leó Jóhannsson og Björn Þorfinnsson.

Aukaverðlaunahafar voru eftirfarandi:

U1600: Óskar Long Einarsson

U2000: Jóhann Ingvason

Lokastaðan á Chess-Results

Chess After Dark þakkar öllum skákmönnum fyrir frábæra mætingu á öll fjögur mótin og hlökkum til að halda áfram í haust.

Að lokum viljum við þakka unglingastarfi Chess After Dark þeim Arnari Milutin & Benedikt Briem fyrir aðstoðina að setja upp mótið, þeir stóðu sig eins og hetjur.

 

Hér er staðan á mótaröðinni

CAD

 

- Auglýsing -