Taflfélag Snæfellsbæjar hélt laugardaginn 6. mars afar glæsilegt minningarmót um Hrafn Jökulsson og Ottó Árnason í Snæfellsbæ.

Mótið var ákaflega vel sótt en 78 keppendur tóku þátt í aðalmótinu og þar má meðal sjö stórmeistarar. Tefldar voru 4 hraðskákir og svo jafn margar atskákir.

Þrettánfaldi Íslandsmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2454) fór mikinn á mótinu og vann það með 7½ vinningi að átta mögulegum. Leyfði aðeins jafntefli gegn nýjasta stórmeistaranum, Vigni Vatnari Stefánssyni (2417).

Vignir varð annar með 7 vinninga og Helgi Ólafsson þriðji með 6½ vinning.

Veitt voru alls konar aukverðlaun. Verðlaunahafar urðu sem hér segir.

  • U2200: Lenka Ptácníková
  • U1900: Davíð Kolka
  • U1600: Sigurður Páll Guðnýjarson
  • Kvenna: Lenka Ptácníková
  • Öldunga: Helgi Ólafsson
  • Unglinga U16: Ingvar Wu Skarphéðinsson
  • Stigalausir: Birgir Þorsteinsson
  • Heimamenn: Sigurður Scheving

Lokastöðu mótsins má finna á Chess-Results

Börnin kepptu á efri hæðinni

Jafnframt fór fram mót fyrir yngri skákmenn á efri hæð félagsheimilisins. Þar var hart barist.

Gunnar Gunnarsson var útefndur fyrsti heiðursfélagi Taflfélag Snæfellsbæjar og er heldur vel að því kominn.

Þorsteinn Gunnarsson tekur við viðurkenningu föður síns Gunnars Gunnarssonar sem var fyrsti heiðurfélagi í taflélaginu

Heimamenn buðu upp á glæsilegar veitingar á meðan mótinu stóð og jafnframt eftir mótið.

Kristinn Kristófersson fjármálastjóri FISK og Tryggvi Leifur Óttarsson skrifa undir samning sem gildir í 4 ár, að verðmæti 4,5 miljónir sem Fisk styrkir taflfélagið um

Tilkynnt var um samstarf FISK Seafood og Talfélagsins en FISK Seafood ætlar að styðja myndarlega við uppbyggingu æskulýðsstarf í bæjarfélaginu.

Myndir: Alfons Finnsson/Skessuhorn.

- Auglýsing -