Birkir, Iðunn og Ingvar Wu. Mynd: Fjölnir

Hátíðarsalur Rimaskóla fylltist gersamlega þegar áhugasamir skákkrakkar streymdu á Sumarskákmót Fjölnis 2023. Hvorki meira né minna en 106 þátttakendur skráðu sig til leiks og tefldu 5 umferðir í jafnri og skemmtilegri keppni. Fjöldi foreldra fylgdist með og aðstoðaði eftir þörfum.

Helgi Áss tók fjöltefli.

Sumarskákmót Fjölnis var sannkölluð skákhátíð í lok kröftugs vetrarstarfs deildarinnar. Tveir stórmeistarar heiðruðu hátíðina; þeir Helgi Áss Grétarsson sem hitaði upp keppendur með fjöltefli og okkar yngsti og nýjasti stórmeistari Vignir Vatnar Stefánsson sem var heiðursgestur mótsins. Vignir Vatnar ávarpaði krakkana og lék fyrsta leik mótsins. Stómeistarinn ungi fékk hlýjar móttökur og dúndrandi lófaklapp enda glæsilegum stórmeistaraáfanga náð.

Vignir Vatnar lék fyrsta leik mótsins.

Tefldar voru 5 umferðir og þrátt fyrir þennan gífurlega fjölda og marga nýliða á skákmóti þá gekk taflmennskan vel fyrir sig.

Mikill fjöldi á mótinu.

Í lok skákmóts var krökkunum boðið upp á veitingar að hætti Fjölnismanna, skúffuköku og safa.

Alls voru 50 verðlaun og happadrættisvinningar afhentir. Auk þess fengu aðrir keppendur þátttökuverðlaun, fótboltamyndir frá Jóa útherja.

Sigurvegarar í eldri flokki, yngri flokki og stúlknaflokki urðu þau Ingvar Wu Skarphéðinsson, Iðunn Helgadóttir og Birkir Hallmundarson. Þau fengu að launum eignarbikara sem Rótarýklúbbur Grafarvogs gaf til mótsins.

Lokastaðan á Chess-Results

Þátttökuverðlaun voru líka verðlaunapeningur frá Þjónustumiðstöðinni Austur og skammtur úr nammiskál Hagkaup, verðlaun sem gerðu mikla lukku á mótinu.

Séð yfir keppnissalinn.

Verðlaun gáfu Hagkaup, Jói útherji, Gullnesti, Bókabúð Grafarvogs og Skákdeild Fjölnis.

Stjórnendur á mótinu voru þau Gauti Páll, Lenka, Jóhann Arnar, Hákon Arnar og Helgi formaður skákdeildar.

Skemmtilegu skákmóti lauk ekki fyrr en kl. 19:00 og allir þátttakendur héldu þá heimleiðis í besta skapi.

- Auglýsing -