Gunnar Erik Guðmundsson er efstur í flokki keppenda undir 2000 elo stigum á Meistaramóti Skákskóla Íslands sem nú stendur yfir. Gunnar hefur unnið allar skákir sínar fjórar talsins. Í 2. – 4. sæti koma Jósef Adamsson, Benedikt Þórisson og Ingvar Wu Skarphéðinsson allir með 3 vinninga. Keppendur í U 2000 flokknum eru ellefu talsins og tefldar verða sjö umferðir. Tímamörk er 25 10. Í fimmtu umferð teflir Gunnar Erik við Guðrúnu Fanney Briem.
Í U 1500 elo flokknum hófu 19 keppendur mótið en þar eru tefldar kappskákr með tímamörkunum 30 30. Að loknum fjórum umferðum af sjö er er Markús Orri Jóhannsson efstur með fullt hús vinninga. Í 2. – 6. sæti koma Arnar Bjarki Jóhannsson, Sigurbjörn Hermannsson, Katrín María Jónsdóttir, Arnaldur Árni Pálsson og Guðmundur Orri Sveinbjörnsson með 3 vinninga. Markús teflir við Guðmund Orra Sveinbjörnsson í 5. umferð.
Það var alþjóðlegi skákdómarinn Páll Sigurðsson sem lék fyrsta leikin í mótinu fyrir Þorstein Jakob Þorsteinsson sem tefldi við Ingvar Wu Skarphéðinsson. Páll hefur verið í gegnum árin verið hjálplegur við undirbúning fyrir meistaramót skólans. Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands og Ingvar Þór Jóhannesson hafa svo staðið vaktina á meðan mótinu stendur en sent er út beint frá átta borðum. Mótinu lýkur í dag en keppt er um mörg glæsileg verðlaun.













