Eftir sex umferðir á Íslandsmótinu að Ásvöllum í Hafnarfirði eru fjórir skákmenn í sérflokki. Allir fjórir efstu unnu sínar skákir í umferð dagsins og allir höfðu þeir svart.
Guðmundur og Hannes eru áfram efstir með 5 vinninga en ungu vonarstjörnurnar Vignir Vatnar og Hilmir eru með 4,5 vinning. Ljóst er að Íslandsmeistarinn kemur úr þessum hópi!
GM Bragi Þorfinnsson (2½) – GM Hannes Hlífar Stefánsson (4)

Hannes kom á óvart með Caro-Kann vörn. Miðtaflið virtist ætla að vera rólegt en þá skellti Hannes í peðaframrásirnar …f5 og …e5 og hleypti öllu í bál og brand. Bragi átti einn séns á að refsa þessum framfrásum en missti af sénsinum og þess í stað fékk Hannes mátsókn og vann glæsilega, sína fimmtu skák í röð!
WGM Lenka Ptácníková (2½) – GM Guðmundur Kjartansson (4)

Katalan-vörn kom upp í enn eitt skiptið á þessu móti. Guðmundur að tefla gegn Katalan annan daginn í röð. Í dag valdi hann …a6 línuna í stað …b5 eins og hann tefldi gegn Vigni. Lenka var kannski full áköf að skipta upp á drottningum og lagaði svörtu peðastöðuna. Svartur fékk auðteflanlegri stöðu og pressu á veikt b3 peðs hvíts.
Þegar pressa Guðmundar var orðin of mikil gaf Lenka mann fyrir tvö peð en það dugði ekki til að þyrla ryki og þrefaldi Íslandsmeistarinn vann góðan sigur með svörtu.
IM Dagur Ragnarsson (1½) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (3½)

Dagur tefldi Grunfeld með skiptum litum en má segja að það hafi misheppnast algjörlega og Vignir fékk strax betra eftir byrjunina. Dagur var alltaf við það að ná að jafna taflið í miðtaflinu en náði því aldrei alveg og lenti loks peði undir í endtafli. Það tók sinn tíma og á köflum voru menn ekki vissir um hvort hvítur væri hreinlega að ná „fortressu“ … eins og heimsmeistarinn fyrrverandi Magnus Carlsen, þá trúir Vignir kannski ekki á „fortressur“ og braust í gegn í lokin.
Jóhann Ingvason (½) – IM Hilmir Freyr Heimisson (3½)

Hilmir valdi að fara frekar í Benoni en leyfa Katalan en varð á í messunni og Jóhann var kominn með mun betra tafl eftir 20.e5. Jóhann náði ekki að vinna úr því og Hilmir fékk sterkt mótspil þrátt fyrir að vera peði undir, ekkert nýtt hjá Hilmi. Í tvísýnni stöðu lék Jóhann af sér heilum hróki og mikilvægur vinningur með svörtu í hús hjá Hilmi.
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (1½) – GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2½)

Miðtaflið virtist fara algjörlega forgörðum hjá Hjörvar í dag. Hann náði ekki að vinna til baka peð hvíts sem komið var á c7 og eftir það hrundi staða svarts hraðar en forskot Arsenal á toppi úrvalsdeildarinnar í apríl.
GM Henrik Danielsen (2) – GM Jóhann Hjartarson (2)

Það virtist stefna í rólegan dag í samhverfum enskum leik hjá Henrik og Jóhanni. Jóhann fékk örlítið betra í miðtaflinu og auðteflanlegri stöðu. Biskup Henriks á g5 lenti svo í vandræðum og Jóhann vann mann með h6 peðsleik og leppun.
Úrslit dagsins:

Staðan:

Hinir fjórir fræknu enn efstir. Á morgun hafa þeir allir hvítt!

Hilmir og Vignir fá báðir stórmeistara í viðureign morgundagsins og því erfiðari skákir á pappírnum.
Allir skákirnar eru í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar á YouTube.
Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15. Skýringar á milli 16 og 16:30.
Styrktaraðilar mótsins eru
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Algalíf
- Teva
- Lengjan
- Guðmundur Arason
- MótX
Tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- BEinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chessbase)
- Beinar útsendingar (kingwatcher)

















