Helgin heilt yfir gekk ekki vel hjá okkar skákmönnum sem sitja að tafli í Evrópu. Einu vinningarnir komu í hús í Tékklandi á Czech Open. Helgi Áss Grétarsson vann sína skák í dag og Sigurður Ingason fékk 1,5 vinning á tvöföldum degi í B-flokki á sama móti. Aleksandr Domalchuk-Jonasson veiktist og treysti sér ekki í lokaumferðina og Omarssynir töpuðu báðir í Serbíu.

Helgi Áss Grétarsson (2475) teflir á Czech Open í Pardubice. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum.

Helgi mætti Þjóðverjanum Marius Gramb (2235). Sá þýski tefldi frumlega i byrjuninni og var kominn með riddara á b6 í þriðja leik. Úr varð týpísk Helga Áss skák, þung stöðubarátta en í miðtaflinu náði Helgi að snúa á Þjóðverjann og vinna skiptamun. Úrvinnslan reyndist auðveld eftir það.

Helgi hefur 2,5 vinning af 3 og mætir pólskum FIDE meistara Michael Fiedorek (2332) og fær svart í fjórðu umferðinni.

Sigurður Ingason situr að tafli í B-flokki á Czech Open

Sigurður Ingason (1721) tefldi í dag tvöfalda umferð í B-flokki á Czech Open. Hann gerði jafntefli í 1. umferðinni í gær við stigalausan andstæðing en náði sér í 1,5/2 í dag. Fyrst var jafntefli Þjóðverjann Tom Moller (1507) og svo lagði Sigurður annan Þjóðverja Kyrillus Akladius (1276).

Í fjórðu umferðinni mætir Sigurður Tékkanum Ivo Svoboda (1950)

Aleksandr að taka við verðlaunum á móti hérlendis.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) lauk leik á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Aleksandr var númer 40 í styrkleikaröð af 227 keppendum.

Aleksandr hafði 5,5 vinning af 8 og átti að mæta Frakkanum IM Thibault Fantinel (2418) í lokaumferðinni með hvítu þar sem sigur hefði gefið loka áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Því miður veiktist Aleksandr, var með háan hita og treysti sér ekki í skákina og varð því að gefa hana óteflda.

Aleksandr hækkar um 16 elóstig fyrir árangur sinn á mótinu.

Hollendingarnir Casper Schoppen (2498) og Liam Vroljik (2517) urðu hlutskarpastir með 7,5 vinning af 9.

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu áttundu umferð á opna mótinu í Serbíu í dag.

Bræðurnir töpuðu báðir sínum skákum í dag, Adam gegn Sofiu Barkasheva (1636) frá Eistlandi en Josef gegn Anastasiu Grodzanovic (1980) frá Serbíu.

Lokaumferðin er á morgun en þá fær Josef skák gegn Milan Vlahovic (2182) frá Serbíu en Adam mætir AFM Nikola Sakotic (1631) einnig frá Serbíu.

 

- Auglýsing -