Bræðurnir Adam og Josef Omarssynir luku leik í Paracin í Serbíu í dag. Adam vann í lokaumferðinni en Josef tapaði sinni skák. Helgi Áss gerði jafntefli í fjórðu umerð í A-flokki í Pardubice og Sigurður Ingason var einnig með traust jafntefli í sinni skák í B-flokki.

Helgi Áss Grétarsson (2475) teflir á Czech Open í Pardubice. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum. Helgi hafði 2,5 af 3 fyrir umferð dagsins

Helgi mætti pólskum FIDE meistara Michael Fiedorek (2332) með svörtu í fjórðu umferðinni. Sá pólski hafði ekki áhuga á að reyna að nýta hvítu mennina og sættist á þrátafli strax eftir byrjunina. Jafntefli niðurstaðan.

Helgi hefur 3 vinninga af 4 og mætir Englendingnum Viktor Stoyanov (2258) í 5. umferðinni.

Sigurður Ingason situr að tafli í B-flokki á Czech Open

Sigurður Ingason (1721) mætti Tékkanum Ivo Svoboda (1950) og varð niðurstaðan jafntefli. Sigurður er taplaus eftir 4 umferðir með 2,5 vinning.

Hann mættir Lukas Drasner (1922) sem er tékkneskur.

Chess-Results

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) ætlaði að tefla á öðru móti í kjölfarið á mótinu sem kláraðist í gær en varð að sleppa því vegna veikindana sem kostuðu hann lokaumferðina. Aleksandr er skráður á annað mót í kjölfarið og stefnir á það.

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu lokaumferðina í Paracin, Serbíu í dag.

Þeir höfðu báðir 2 vinninga af 8 fyrir lokaumferðina.

Adam mætti AFM Nikola Sakotic (1631). Adam hafði yfirhöndina mest alla skákina. Hvítur missti aðeins tökin á stöðunni á köflum en aldrei þannig að svartur fengi betra tafl. Adam náði aftur betra tafli og vélaði svo skiptamun af anstæðingi sínum og vann skákina.

Adam endar því með 3 vinninga af 9 og hækkar um 18 elóstig fyrir frammistöðuna

Josef fékk grjótharða pörun í lokaumferðinni, Milan Vlahovic (2182), ljónhart serbneskt nafn. Hljómar eins og framherji hjá Fiorentina í fótbolta!

Josef tefldi byrjunina vel og hafði fína stöðu. Í 20. leik missir hann af sannkölluðum fréttablaðsleik.

Hér hefði svartur getað landað 20…Dxf2!! og svartur vinnur drottninguna til baka eftir 21.Hxf2 Re1+

Josef hafði áfram fína stöðu en fljótlega í kjölfarið urðu uppskipti og hvítur náði að hanga á umframpeðinu. Erfitt endatafl beið hjá Josef sem hann náði ekki að halda.

2 vinningar af 9 lokastaðan hjá Josef og 18 elóstig sem hann hagnast fyrir frammistöðuna. Báðir eru þeir hinsvegar fyrst og fremst að fá mikla og góða keppnisreynslu og rútínu í byrjanafræðum og stúderingum/undirbúningi fyrir skákir sem var á háu plani hjá þeim í þessu móti.

 

- Auglýsing -