Kristján Örn Elíasson hefur um nokkra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mætti Áskell Örn Kárason í þáttinn. Í kynningu um þáttinn segir:
Áskell Örn Kárason, formaður Skákfélags Akureyrar og alþjóðlegur meistari í skák er á símalínunni og talar frá Akureyri við Kristján Örn Elíasson í þætti hans Við skákborðið. Þetta er virkilega skemmtilegt viðtal þar sem Áskell segir frá starfi Skákfélags Akureyrar, hvernig það gangi að halda uppi skáklífi á landsbyggðinni, kennslu í grunnskólum bæjarins síðustu árin, ferðum á Ólympíumót, hvernig hann varð alþjóðlegur meistari í skák og mörgu öðru sem gaman er að.
Þáttinn má nálgast á Spotify.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
















