Úrslitaeinvígið á Heimsbikarmótinu fer í bráðabana. Magnus og Pragga gerðu stutt og leiðinlegt jafntefli í skák dagsins. Caruana náði að jafna metin gegn Abasov í baráttunni um bronsið og það einvígi fer líka í bráðabana.

Magnus Carlsen (2835) – Rameshbabu Pragganandhaa (2707)

Magnus tefldi jafnteflisafbrigði með hvítu og reyndi ekkert. Byrjanavalið kom Anand á óvart.

Magnus hefur áður beitt þessari strategíu eins og Anand bendir á, gegn Karjakin árið 2016. Þá var heimsmeistaraeinvígið jafnt og Carlsen með hvítt í 12. og síðustu kappskákinni. Flestir töldu að Carlsen myndi reyna að nýta hvítu mennina og pressa á Karjakin en hann tók hinsvegar stutt jafntefli og stýrði einvíginu í bráðabana.

Ástæður fyrir þessari ákvörðun eru væntanlega nokkrar. Við getum byrjað á því að nefna að Carlsen hefur verið glíma við matareitrun og því vafalítið orkulaus. Bara út frá því er ákvörðunin skiljanleg. Aðrar ástæður eru klárlega tengdar leikjafræði. Þegar Magnus tekur ákvörðun um að tefla jafnteflisafbrigði eins og þetta þarf hann að eyða mjög lítilli orku. Hann getur sett allan fókus á bráðabanaeinvígið sem er framundan. Á meðan þarf andstæðingurinn að undirbúa sig fyrir allskonar sviðsmyndir, fara vel yfir sínar byrjarnir og vera klár í að verjast. Um þetta var mikið talað eftir ákvörðunina gegn Karjakin 2016.

Í ofanálag þá er Carlsen mun hrifnari af styttri skákum og telur líklegast að hans líkur séu betri í tveimur styttri skákum en einni kappskák, þó hann hafi hvítt. Í öllu falli kemur í ljós á morgun hvort ákvörðunin hafi borgað sig!

Viðtöl:

 

Fabiano Caruana(2782) – Nijat Abasov (2646) –

Caruana náði að þvinga bráðabana. Abasov lenti greinilega í því að láta koma sér á óvart í rúlluskautavaríant. Abasov greinilega þekkti ekki varíantinn með langri hrókun og Caruana náði að nýta sér það. Ef svartur kann varíantinn ekki upp á 10 getur hann einfaldlega endað skiptamun undir eins og Abasov gerði. Caruana náði svo að vinna úr liðsaflanum í endataflinu.

Á morgun er komið að bráðabana og úrslit munu loks ráðast eftir langt og strangt mót!

Útsending dagsins:

- Auglýsing -