Bragi Þorfinnsson tók forystuna í Áskorendaflokki með dýnamískum sigri á Olgu Prudnykovu í sjöundu umferð Áskorendflokks. Bragi er ansi líklegur að enda í tveimur efstu sætunum og tryggja sér sæti í Landsliðsflokki en hinsvegar er morgunljóst að baráttan um tvö efstu sætin verður allt að því goðsagnakennd um helgina!

Á efsta borði var loks komið að uppgjöri Olgu Prudnykovu (2268) og Braga Þorfinnssonar (2394). Svissneska kerfið neitað okkur tækifærinu að sjá þessa viðureign í sjöttu umferð þar sem þau höfðu bæði haft tvisvar sinnum hvítu mennina í röð og ekki er hægt að fá þrisvar sinnum hvítt í svissneska kerfinu.

Olga hafði hvítt og hafði vaðið fyrir neðan sig með 1.b3 í fyrsta leik. Segja má að Olga hafi teflt kóngsindverska vörn með skiptum litum og spegluðum vængjum!

Bragi tók eiginlega slaginn eins snemma og hann bauðst og blés til sóknar á drottningarvæng þar sem Olga hrókeraði.

Bragi tilkynnti áætlanir sýnar nokkuð afgerandi með 16…Hxb2! svartur fórnar skiptamun en flóðgáttirnar opnast svo sannarlega að hvíta kóngnum! 17.Kxb2 cxd4 18.exd4 Rc6 og svartur fær d-peðið í kaupbæti. Bragi nýtur sín einna best í stöðum þar sem hann hefur frumkvæðið og hann sýndi það með kröftugum leikjum og fljótlega var ljóst að þrátt fyrir liðstap var svartur með alla menn sína eins virka og hægt var.

Fyrir frumkvæðisskákmann eins og Braga er ekkert mál að finna leiki eins og 22….Rxb3! flóðgáttir opnast svo um munar og þrátt fyrir að Bragi hafi misst af beinustu leiðinni til Rómar var hann alltaf að enda í Róm. Mikilvægur sigur fyrir Braga og nú er Landsliðsflokkssætið nánast í höfn hjá stórmeistaranum.

Á öðru borði var gríðarlega mikilvæg skák á milli Benedikts Briem (2207) og Bárðar Arnar Birkissonar (2191). Báðir keppendur þurftu eiginlega á sigri að halda til að halda voninni um Landsliðsflokks sæti á lífi.  Bárður bauð upp á þráleik snemma tafls en Benedikt tilkynnti að hann ætlaði að taka slaginn með því að hafna því.

Benedikt lék í 21. leik peði sínu til b4. Tölvurnar „hafna“ þeim leik og þess í stað hefði 21.a4! gefið hvítum góð færi. Svartur fékk þess í stað mun þægilegri stöðu. Þrátt fyrir það hlýtur hvítur að hafa fengið færi á að skipta niður í jafnteflislegt hróksendatafl.

39.a5?? var ekki góður leikur. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson mætti og var á meðal áhorfenda benti á að 39.Hb4!? Hxc5 40.Hc1 væri líklegast jafntefli. Þrátt fyrir vænlegt tafl er ekki hægt að finna sjáanlega leið fyrir svartan til að koma peðum sínum af stað. Hvítur leikur næst Kg2 og mætir svarta kóngnum og það er engin leið að virkja svarta kónginn án þess að missa c4-peðið. Hvítur getur auk þess farið að gæla við að gefa a-peðið fyrir c-peðið. Eftir gerðan leik Benedikts virtist Bárður ekki eiga í vandræðum með að sigla vinningnum heim. Bárður er því kominn í mikla baráttu um sæti í Landsliðsflokki að ári!

Á þriðja borði hafði Benedikt Þórisson hvítt gegn Davíð Kjartanssyni (2292). Benedikt tefldi af öryggi og var ekki í neinum vandræðum með hvítu. Davíð ákvað að beita einhverju refa-bragði og bauð jafntefli eftir 20…Kg7. Benedikt þáði boðið en það er eiginlega fráleit ákvörðun þar sem hvítur getur teflt taflið nánast án áhættu og líklegast vinnur hvítur d5-peðið nokkur þvingað og getur því pressað áhættulaust peði yfir í endatafli. Davíð slapp þarna með skrekkinn! Ungu mennirnir verða að hafa hugrekki í að refsa þeim eldri í slíkum aðstæðum!

Á fjórða borði hafði Lenka Ptacnikova (2139) hvítt gegn varaformanninum Gauta Páli Jónssyni (2055). Gauti jafnaði taflið og hafði eilítið betri stöðu en ekki nóg til að valda einhverjum alvarlegum usla. Hvítur var alveg inni í skákinni en í 25. leik kom stór afleikur.

25.Dc3?? gaf svörtum auðvelda taktík. „Skák-Víkingurinn“ á TikTok kallar þessa taktík „Queen-Sweep“ eða drottningarfelluna.

@thechessviking

An IMPORTANT Tactical Pattern, The Queen SWEEP #ChessTactics #ChessTok #ChessPattern #Chess #ChessLesson #ChessTikTok

♬ original sound – The Chess Viking – The Chess Viking

Gauti þekkti þessa taktík að sjálfsögðu og kláraði dæmið. 25.Dxd2 Dxd2 26.Hxc4 hefði líklega haldið í horfið. Hvítur hefur hrók og biskup fyrir drottninguna en það sem er mikilvægast er grjóthart frípeð á c-línunni.

Fínn sigur hjá Gauta sem kemur honum í dauðafæri….er Gauti að koma á hlið?

Jóhann Ingvason þurfti virkilega á sigri að halda til að gera sína þriðju atlögu að sæti í Landsliðsflokki. Birkissynirnir hafa hinsvegar sýnt að það engan veginn auðvelt að vinna þá og jafntefli varð niðurstaðan þrátt fyrir að Jóhann hafi haft umframpeð á köflum.

Ein magnaðasta skák umferðarinnar var á sjötta borði. Mikael Bjarki Heiðarsson eða „Mike-arinn“ eins og gárungarnir í Breiðablik kalla hann hafði hvítt gegn Andrey Prudnikov.

Andrey tefldi smá „gömlu-kalla“ byrjun með Czech-Benoni og gekk það vel upp. Andrey fékk eignlega vinningsstöðu en náði ekki að fylgja því eftir og fór úr vinningsstöðu í tapstöðu með 33…Rg5?? Mikael tók skiptamuninn og hafði vinningsstöðu.

Upp kom hreint ótrúleg staða þar sem margar leiðir liggja til Rómar fyrir svart en 47…Re6?? sem svartur valdi var ekki ein af þeim!

Hvítur fékk magnaðar stöðulegar bætur og mögulega bjó meira í hvítu stöðunni en Mikael fékk jafntefli sem heilt yfir hljóta að teljast sem góð úrslit!

Á sjöunda borði valdi David Kolka að leika 19…f6 og bjóða jafntefli sem hvítur þáði.

Hvers vegna lék svartur ekki 19…He2 og teflir nánast frítt upp á tvö úrslit?? Hvíti hrókurinn er passífur á b1, svartur getur sett riddara á d5 og bætt stöðuna nánast fritt. Kannski var svartur að missa af strætó??

Mikael  Jóhann hafði Josef á reynslunni í þungri pósaskák.

Jóhann Ragnarsson var með fína tilburði með hvítu gegn Hadi Rezaei Heris. Í anda Alphazero voru svörtu mennirnir gerðir að áhorfendum og svarta drottningin endaði á h8…vonlítil!

Þáttastjórnandinn Kristján Örn Elíasson kláraði sína skák með stæl. 38…Hxg2+!! var glæsilegur leikur og hvítur er mát eftir 39.Kxg2 Df2 40.Kh1 De1+ Haraldur gafst upp en hann er mát eftir 42.Kg2 Dg3+ 43.Kh1 Rf2 og mát!

Arnar Milutin Heiðarsson (2109) hefur ekki átt sitt besta mót og hann slapp með skrekkinn í 7. umferðinni.

Andstæðingur hans, Grikkinn Athanasisos Mistigliouglu (1582) fór í örvæntinguna með 33.Hxf7?? en 33.Hc5!! hefði gefið vinningsstöðu. Ótrúlegt nokk á svartur enga vörn við hótuninni að setja hrókinn á g5-reitinn, svartur er í algjörri beyglu og tapar með bestu taflmennsku.

Í skák er oft mikilvægt að nota tímann sinn skynsamlega. Sigurbjörn Hermannsson er ungur og efnilegur skákmaður sem hefur margt til brunns að bera.

Ákvörðunin að leika 22.Dd4?? í jafnri stöðu og skilja eftir 1:23 á klukkunni er samt vonandi eitthvað sem læra má af. Staðan er jöfn en gerður leikur skilur svartan eftir með einfalda taktík 22…Hcd8! og hvítur verður að gefast upp. 23.Dxc5 er svarað með 23…Hxd1+ og svo tekur svartur drottninguna og er hróki yfir!

Miklar sveiflur voru á 15. borði. Hamed Gramizadeh tapaði manni snemma og hefði átt að tapa öðrum í 11. leik!

11…f6 vinnur annan mann fyrir svart. Þess í stað mátaði hvítur í 17 leikjum!!

Á 16. borði fór fram ein skemmilegasta skák umferðarinnar. Örvar Hólm Birkisson tefldi Evans bragð og bauð upp á mjög menntaða taflmennsku, gaf fullt af peðum fyrir súper-frumkvæði. Með réttri taflmennsku hefið þessi taflmennska átt að skila sigri en Markús Orri náði að verjast með mikilli seiglu og jafntefli niðurstaðan.

Virkilega gaman að sjá unga skámenn tefla af slíkum krafti!

Úrslit:

Hægt er að nálgast skákir 7. umferðar inni á lichess hér. Einnig hægt að hala niður 7. umferð á PGN hér.  Beinar útsendingar eru bara á LiveCloud (sjá link að neðan) en skákir eru settar inn á lichess eftirá.

Í 8. umferð sem fer fram á morgun klukkan 13:00 þá mætir Bragi Gauta á fyrsta borði. Gauti þarf líklegast að næla sér í vinning til að eiga raunhæfa mögulega á Landsliðsflokkssæti. Raunhæft mat er þó að skákin á 2. borði milli Bárðs og Olgu sé skákin sem skilur á milli. Ef við fáum einhver úrslit önnur en jafntefli eru úrslitin líklega hartnær ráðin!

Lokaumferðinarnar tvær verða tefldar um helgina og byrja þær báðar klukkan 13:00. Oddastigaútreikningur* mun ráða lokaröð sæta og keppendur sama hafa tekið hjásetu þurfa því eiginlega að enda hálfum vinningi ofar en samkeppnisaðilar!

 

- Auglýsing -