Sex íslenskir keppendur hófu í dag leik á Evrópumeistaramóti ungmenna á Mamaia í Rúmeníu. Hátt í 1000 keppendur eru mættir hér til leiks í 12 mismunandi flokkum, skiptum eftir aldri og kyni. Sex íslenskir keppendur eru mættir hér til leiks. Mamaia hefur haldið nokkur mótin í gegnum tíðina og er þetta meðal annars í þriðja skiptið sem EM ungmenna fer fram hér í Mamaia, síðast 2017 og þar áður fyrsta mótið árið 1991.
Margir sterkir skákmenn hafa í gegnum tíðina nælt sér í titla á þessum mótum og má þar meðal annars nefna Peter Leko, Sergey Karjakin, Teimour Radjabov, Ian Nepomniachtchi og áfram mætti telja.
Íslensku keppendurnir að þessu sinni eru: Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Benedikt Briem í U18, Matthías Björgvin Kjartansson í U14, Josef Omarsson í U12, Birkir Hallmundarson í U10 og Emelía Embla B. Berglindardóttir í U10 stelpna. Þjálfari er FIDE-meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson.
U18

Íslensku keppendurnir eru nokkuð ofarlega í þessum flokki. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 14 í styrkleikaröðinni og hann mætti Ungverjanum Akos Kocsmar (2115) í 1. umferðinni. Aleksandr hafði hvítt.
Skákin varð nokkuð týpísk fyrir stíl Aleksandr. Traust 1.d4 byrjun með hvítu og svartur fékk aldrei færi á neinu. Smátt og smátt bæti hvítur stöðuna og greip allar stöðulegar bætingar sem voru í boði hverju sinni þar til svarta staðan bognaði og svartur var meira að segja í mátneti í lokin!

Benedikt Briem (2207) hafði líka hvítt en Benedikt byrjaði rétt fyrir neðan miðju í styrkleikaröðinni númer 44 og fékk keppanda númer 2 í styrkleikaröð, Emil Ohanyan (2490) frá Armeníu. Sá tefldi nýlega í Junior Speed Chess Championship gegn sjálfum Gukesh og augljóst efni hér á ferð.
Benedikt tefldi Catalan með hvítu og fékk upp afbrigði sem hann bjóst við, Armeninn kom samt á óvart með …Hb8 leiknum í 8. leik. Hvítur fékk samt fína Catalan stöðu, peði undir en með fínar bætur, góða reiti og pressu á c-línunni. Eitthvað lýsi vantaði þó í taflmennsku Benedikts að þessu sinni og aðeins fór að halla undan fæti í miðtaflinu og Armeninn sneri taflinu smátt og smátt sér í vil.
U14

Matthías Björgvin Kjartansson (1680) fékk svart á efnilegan Dana, Emil Zander (2138) sem er á yngra ári í þessum flokki. Úr varð löng og ströng skák en seint í henni tapaði Matthías peði og varð að lúta í dúk í tæplega 70 leikjum eftir harða baráttu.
U12

Josef Omarsson (1764) er númer 38 í styrkleikaröðinni í sínum flokki. Hann mætti Nick Calleja Urry (1170) frá Möltu. Josef fékk strax betra tafl eftir byrjunina með svörtu og sýndi fljótlega að mikill styrkleikamunur var á keppendum í þessari skák. Fín byrjun hjá Josef.
U10

Birkir Hallmundarson tefldi við Moldóva, Crisitan Popa (1123) sem var greinilega sýnd veiði en ekki gefinn. Birkir lenti í vandræðum gegn Smith-Morra gambítnum og hvítur fékk of mikinn tíma fyrir sóknina sína og Moldóvinn tefldi líka býsna vel!
U12 stúlkna

Emilía Embla B. Berglindardóttir (1238) tefldi upp fyrir sig við þýska stelpu, Cosima Thien-An Wagner (1569). Emilía tefldi London-system með hvítu og gekk nokkuð vel framan af skákinni. Emilía var peði yfir en með veika kóngsstöðu en gleymdi sér og lék sig í mát. Smá taugar í fyrstu umferð á svona stóru móti sem er bara eðlilegt. Taflmennskan fín og vinningarnir koma.
Önnur umferð fer fram á morgun og hefst hún eins og þær flestar klukkan 12:00 að íslenskum tíma. Aleksandr teflir aftur niður fyrir sig og mætir pólska FIDE-meistarnum Tymon Ochedzan (2220) en þeir mættust einmitt fyrir nokkrum vikum en þá vann Aleksandr sigur með hvítu mönnunum. Á morgun hefur hann svart. Josef fær erfiða skák gegn Paul Boulous (2073) frá Frakklandi.

















