Björgvin Víglundsson varð í dag Íslandsmeistari öldunga. Björgvin hafði vinningsforskot fyrir lokaumferðina og tryggði sér titilinn með jafntefli gegn Kristján Erni Elíassyni.

Kristján Örn Elíasson(1758) – Björgvin Víglundsson (2176)

Björgvin bauð jafntefli í 10. leik en Kristján hafnaði því. Vildi Kristján ekki draga úr spennunni með stuttu jafntelfli og þess í stað hafa smá gaman að þessu! Staða Kristjáns hrakaði hinsvegar í miðtaflinu og líklega var það góð ákvörðun að bjóða jafnteflið til baka áður en það yrði of seint. Björgvin þáði boðið.

 Bragi Halldórsson (2047) – Þór Valtýsson (1914) 

Þór hefði þurfti hjálp hjá Kristjáni og auk þess að vinna með svörtu gegn Braga. Hér mættust tveir Caro-Kann skákmenn og fróðlegt að sjá hvað Bragi teflir gegn eigin byrjun.

Bragi og Þór skiptust á að hafa eitthvð betra tafl á köflum en þegar leið á reyndist biskup Braga sterkari en biskup Þórs. Kóngsstaða svarts opnaðist útaf hvítreitaveikleikum og Bragi náði að nýta sér það í langri skák.

Ögmundur Kristinsson (1934) – Lárus S Guðjónsson (0) –

Klárlega besta skák Lárusar á mótinu. Skákin lengst af í jafnvægi og aðeins betra hjá Lárusi á köflum samkvæmt tölvunum. Í lokin sagði tímahrakið og reynsla Ögmunds til sín og Ögmundur náði sigri sem tryggði honum annað sætið á mótinu.

Lokastaðan

Björgvin Íslandsmeistari með 4 vinninga af 5. Ögmundur hafði annað sætið á stigum og Bragi varð þriðji.

Veitt voru flokkaverðlaun.

Þór Valtýsson var hlutskarpastur í flokki 80+
Björgvin Víglundsson var bestur í 75+
Ögmundur varð efstur í 70+

Almenn ánægja var með að halda mótið á sama tíma og Íslandsmót kvenna og það er ekkert því til fyrirstöðu að vegur þessa móts verði meiri á næstu árum. Við eigum fjöldann allan af skákmönnum á þessum aldrei og væri gaman að sjá flotta mætingu á næstu árum!

- Auglýsing -