Björgvin Víglundsson er orðinn ansi líklegur að enda upp sem Íslandsmeistari öldunga. Björgvin vann í dag sigur á Ögmundi Kristinssyni sem var í öðru sæti fyrir umferðina og hefur Björgvin vinningsforskot fyrir lokaumferðina.

Björgvin Víglundsson (2176) – Ögmundur Kristinsson(1934)

Drottningarbragð kom upp og hafði Björgvin örlítið betra tafl en 19. leikur Ögmundur 19…c5? var ekki góður.

20.Rb5 og allt í einu eru hótanirnar á c7 og d6 að fara að kosta svartan skiptamun. Þetta nægði fyrir Björgvin til að ná í sigur í skákinni.

Þór Valtýsson (1914) Kristján Örn Elíasson(1758)

Þór þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að halda í við Björgvin. Skömmu áður en samið var jafntefli var Þór með mjög vænlegt tafl.

30.Bxg7 Kxg7 31.gxh6 og svo Re5 í næsta leik hefði líklega gefið hvítum yfirburðatafl.

Lárus S Guðjónsson (0) –  Bragi Halldórsson (2047)

Bragi náði að brjótast í gegn í löngu miðtafli/endtafli í Caro-Kann og hafði betur gegn Lárusi.

Staðan fyrir lokaumferðina

Björgvin hefur vinningsforskot og eina leiðin til að hann verði ekki Íslandsmeistari er ef hann tapar sinni skák og Þór vinnur með svörtu gegn Braga.

Síðasta umferðin fer fram klukkan 14:00 í dag

- Auglýsing -