Íslenska sveitin á HM öldungasveita tapaði í dag fyrir sterkri sveit Bandaríkjamanna. Viðureignin var mjög spennandi og öll þrjú úrslit möguleg á mismunandi stigum viðureignarinnar.
Igor Novikov hvíldi hjá Bandaríkjamönnum.

Helgi Ólafsson hvíldi hjá íslensku sveitinni.
Mjög lengi framan af viðureigninni skildi lítið á milli og erfitt að sjá hvar vinningarnir gætu komið. Ehlvest fékk eitthvað ívið betra með hvítu gegn Jóni L en á móti var Jóhann með sénsa á móti Shabalov.
Margeir hafði hvítt gegn Kaidanov á öðru borði. Margeir verið drjúgur og var með 4 vinninga af 4 mögulegum fyrir umferðina. Margeir hafði örlítið betra en snemma í miðtaflinu varð staðan nánast symmterísk og jafntefli var samið.
Stuttu síðar kom jafntefli hjá Þresti á fjórða borði.

Þröstur hafði hvítt gegn Yermolinski. Taflmennskan var traust hjá Þresti og ekki miklir sénsar teknir. Staðan var í jafntefli lengst af en kannski var Þröstur með örlítið betra þegar samið var. Í öllu falli litu stöðurnar hjá Jóhanni og Jóni L þokkalega út á þessum tímapunkti, Jón L virtist vera að ná að bjarga sinni stöðu og Jóhann með vænlegt tafl.
Jóhann virtist ná að yfirspila Shabalov í miðtaflinu með svart í spænska leiknum. Jóhann var kominn með eitthvað betra og fékk mjög góð færi eftir slakan leik 34.f3?
Jóhann vann peð og virtist eiga mjög góða sénsa á sigri. Shabalov fór í mótspil sem því miður virkaði. Jóhann átti þröngt einstigi að betra tafli en niðurstaðan varð þráleikur. Þarna var Jón L í erfiðri vörn og sveitin því að berjast fyrir jafntefli.
Jón L mætti Jan Ehlvest og hafði svart. Jón virtist fá aðeins erfiðara tafl skömmu eftir byrjunina. Ehlvest fékk meira rými og riddari Jóns stóð ekki vel. Jón náði að laga stöðuna, einfalda taflið og tefla svolítið í kringum riddara hvíts á c6-útstöðinni. Á móti hafði Jón lagað sinn riddara. Um svipað leyti er Þröstur að semja og staðan lítur vel út hjá Jóhanni. Héldu því einhverjir á hliðarlínunni að við gætum farið að gæla við sigur í viðureigninni.
Þá tók við slæmur kafli í skákinni og riddari Jóns varð hálfgerður strandaglópur sem gerði honum erfitt fyrir í vörninni. Ehlvest fékk aftur góða stöðu og svo unnið tafl. Jón barðist vel og lengi í töpuðu endatafli en á endanum var stöðunni ekki viðbjargandi.
Svekkjandi tap með minnsta mun í viðureign sem hefði alveg eins getað dottið á hinn veginn með smá stríðsgæfu.

Íslenska liðið dettur niður í þriðja sætið, Bandaríkjamenn orðnir efstir og Ítalir hafa hoppað yfir okkar menn.

Næst á dagskrá er sveit heimamanna í Norður-Makedóníu. Þar eru þeir nokkuð sterkir á efstu tveimur borðunum og sveitin er reyndar öll skipuðum stórmeisturum þó stigalágir séu á neðstu borðunum.

Ísland hefur hvítt á fyrsta borði.
Taflmennskan hefst klukkan 13:00 alla daga sem teflt er. Frídagur er 25. september og beinar útsendingar eru á lichess, Chess.com og Chess24 og eru skákskýringar Alex Colovic á chess24 hlekknum.
Íslenska liðið er númer fimm í styrkleikaröðinni og liðið skipa fjórmenningaklíkan auk Þrastar Þórhallssonar, allt stórmeistarar.
- Helgi Ólafsson (2491)
- Jóhann Hjartarson (2432)
- Margeir Pétursson (2396)
- Jón L. Árnason (2419)
- Þröstur Þórhallsson (2382)
Bandaríkin og England hafa feykisterk lið og bandaríska liðið er mjög sigurstranglegt. Alls eru 22 sveitir skráðar til leiks.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar Útsendingar (lichess.org)
- Beinar Útsendingar (chess.com)
- Beinar Útsendingar (chess24)















