Norðurlandamót skólasveita hófst í dag við góðar aðstæður á Laugarvatni. Teflt er við góðar aðstæður í íþróttahúsinu og búið er að teppaleggja miðjan salinn og aðstæður með besta móti. Veðurblíðan var einnig með besta móti þannig að allt fór vel af stað hér á Laugarvatni.
Keppt er í A-grúppu (allt að 10. bekk) og B-grúppu (allt að 7. bekk). Í báðum flokkum mættust íslensku sveitirnar í fyrstu umferð.
Í A-grúppu mættust Vatnsendaskóli og Landakotsskóli.
Sveit Vatnsendaskóla skipa
- Mikael Bjarki Heiðarsson
- Jóhann Helgi Hreinsson
- Guðmundur Orri Sveinbjörnsson
- Arnar Logi Kjartansson
Sveit Landakotsskóla skipa:
- Adam Omarsson
- Jósef Omarsson
- Iðunn Helgadóttir
- Jón Louie Thoroddsen
Arnar Logi var fyrstu að klára og náði í vinning fyrir Vatnsendaskóla. Jón Louie stóð til vinnings en lék illa af sér og Arnar sneri taflinu sér í vil. Adam, Josef og Iðunn svöruðu af krafti fyrir Landakotsskóla sem hafði sigur í viðureigninni 3-1.


Geirsings Realskole frá Danmörku vann einnig 3-1 sigur gegn sænskri sveit. Sá eini sem náði í vinning hjá Svíunum var ungur skákmaður Victor Lillehook.

Landakotsskóli verður að teljast líklegur sigurvegari, sérstaklega eftir þennan góða sigur í fyrstu umferð.
Í yngri flokki taka þátt Íslandsmeistarar Lindaskóla og svo aftur Vatnsendaskóli en sveitirnar mættust í fyrstu umferð.

Lið Lindaskóla
- Sigurður Páll Guðnýjarson
- Engilbert Viðar Eyþórsson
- Birkir Hallmdunarson
- Örvar Hólm Brynjarsson
- Nökkvi Hólm Brynjarsson
Sveit Vatnsendaskóla
- Þórhildur Helgadóttir
- Aðalsteinn Egill Ásgeirsson
- Þórarinn Víkingur Einarsson
- Hrannar Már Másson
Skemmst er frá því að segja að Lindaskóli vann öruggan 4-0 sigur. Þórhildur barðist af krafti á fyrsta borði gegn Sigurði Páli svo eftir var tekið en varð þó að lúta í dúk að lokum.

Norska sveitin frá Kringsja skole vann einnig 4-0 sigur á Vastbergaskolan.

Mótið heldur áfram um helgina, tvær umferðir á laugardeginum klukkan 10:00 og 16:00 og svo á sunnudaginn 09:00 og 15:00.
- Facebook síða mótsins
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results A (u17) | Chess-Results B (u13)
- Beinar útsendingar á lichess A
- Beinar útsendingar á lichess B
















