Vignir að tafli á HM U20 árið 2023 Mynd. David Llada

Jafntefli voru á matseðlinum í 9. umferð á HM U20 ára og yngri í Mexíkó. Vignir Vatnar Stefánsson (2484) gerði jafntefli við heimamanninn og alþjóðlega meistarann Sion Radamantys Galaviz Medina (2462). Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) gerði einnig jafntefli í sinni skák gegn kanadíska FIDE meistaranum Jonathan Han (2252).

Vignir hafði hvítt og upp kom Catalan byrjunin sem er mjög vinsæl þessi dægrin. Vignir breytti aðeisn útaf og tefldi afbrigði með Re5. Svartur virtist standa nokkuð vel á sínu í teóríunni. Gegn vel undirbúnum andstæðingum er oft erfitt að fá stöður sem hægt er að tefla til vinnings. Vignir náði þó að komast í endatafl þar sem hann hafði umframpeð. Því miður var um að ræða drottningarendatafl þar sem þráskákarmöguleikar eru oft umtalsverðir og náði Vignir ekki að gera sér mat úr umframpeðinu.

Aleksandr var grátlega nærri sigri gegn kanadískum FIDE meistara. Líklegast munaði bara „einum á ská“ á milil jafnteflis og sigurs.

Eftir kröftuga byrjun og gott frumkvæði lék Aleksandr hér 27.Dd4. Framhaldið varð 27…Rxd5 28.Bd1 Rb6 29.Bb3 Rc4

Svartur nær að redda sér hér og Aleksandr fann ekkert til að halda frumkvæðinu. Hefði Sasha hinsvegar valið 27.De5 hefði sama framhald verið unnið. Þá væri staðan svona:

…en nú ætti hvítur 30.Hxg7!! og hvítur vinnur útaf auka möguleikanum að skáka á e6 með drottningu! Það getur stundum munað grátlega litlu í skákinni!

Í 10. umferð fær Vignir svart og mætir FIDE meistaranum Juan-Sebastien Melian (2295) frá Paraguay. Aleksandr fær hvítt gegn IM Samir Sahidi (2476) frá Slóvakíu. Okkar menn þurfa að byrja endasprettinn ekki seinna en strax! 2 af 2 í lokaumferðunum gæti gefið gott sæti!

Um mótið:

Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149.

Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)

  1. umferð 21. september LOKIÐ
  2. umferð 22. september LOKIÐ
  3. umferð 22. september LOKIÐ
  4. umferð 23. september LOKIÐ
  5. umferð 24. september LOKIÐ
  6. umferð 26. september LOKIÐ
  7. umferð 27. september LOKIÐ
  8. umferð 28. september LOKIÐ
  9. umferð 29. september LOKIÐ
  10. umferð 30. september klukkan 22:00
  11. umferð 1. október klukkan 16:00

Frídagur er í dag mánudaginn 25. september

- Auglýsing -