HM ungmenna í flokkum U12, U10 og U8 fer fram þessa dagana í Egyptalandi. Ísland á tvo keppendur á mótinu. Josef Omarsson teflir í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10. Báðir höfðu þeir 1 vinning eftir 2 umferðir.

Birkir mætti georgískum strák, Nika Tsulaia (1242) og hafði sigur úr býtum. Í næstu umferð mætir Birkir Lev Sivko (1160) frá Rússlandi en teflir undir fána FIDE.

Alls eru 115 keppendur í U10 flokki Birkis. Birkir er númer 34 í stigaröðinni.

Í 3. umferð í U12 mætti Josef 4. stigahæsta manni flokksins, Rúmenanum Henry Edvard Tudor (2255). Sá hefur verið yfir 2300 elóstigum og er bráðefnilegur. Hann skýrði góða sigurskák fyrir Chessbase India fyrir ekki alls löngu.

Josef ruglaði saman línum í byrjuninni, fékk verra og náði ekki að vinna sig aftur inn í skákina.

Josef fær líka Rússa í 4. umferð eins og Birkir. Hann mætir Kiryl Babeikin (1420).

Josef og Birkir ásamt Oliver Kovacik sem bjó um tíma á Íslandi

Alls verða tefldar 11 umferðir í báðum flokkum en nú er enginn frídagur á mótinu sökum frestunar á fyrstu umferðinni.

Flokkur Jósefs á Chess-Results U12

Flokkur Birkis á Chess-results U10

Svipmyndir frá Egyptalandi. (Myndir: FIDE)

- Auglýsing -