UM ungmenna (u14-u18) fer fram í Montesilvano á Ítalíu dagana 13.-24. nóvember. Hvorki meira né minna en 12 íslensk ungmenni taka þátt. Fram að móti verða íslensku fulltrúarnir kynntir til leiks – 3-4 á dag!
Nú kynnum við til leiks Adam Omarsson sem teflir í u16-flokki.
HM-fararnir
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (u18)
- Benedikt Briem (u18)
- Benedikt Þórisson (u18)
- Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (u18)
- Ingvar Wu Skarphéðinsson (u16)
- Adam Omarsson (u16)
- Iðunn Helgadóttir (u16)
- Mikael Bjarki Heiðarsson (u14)
- Matthías Björgvin Kjartansson (u14)
- Markús Orri Jóhannsson (u14)
- Markús Orri Óskarsson (u14)
- Guðrún Fanney Briem (u12)
- FM/FT Björn Ívar Karlsson (Fararstjóri og þjálfari)
- Gauti Páll Jónsson (Fararstjóri og þjálfari)
Nafn
Adam Omarsson
Flokkur?
u16
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul
Mamma og pabbi þegar ég var í kringum 3 ára gamall
Uppáhaldsskákmaður?
Hef ekki hugmynd
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir HM ungmenna?
Tefla á eins mörgum mótum og hægt er og stúdera sjálfur heima
Besta skákin
Þegar að ég valtaði yfir Norðmanninn á Uppsölum.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Komast yfir GPJ á stigum
Eitthvað að lokum?
Áfram Ísland
- Auglýsing -

















