Þeir tvíburabræður Bárður Örn Birkisson (2254) og Björn Hólm Birkisson (2124) hófu í dag leik á opnu móti á Spáni, Elllobregat Open. Mótið er nokkuð fjölmennt en alls taka 210 skákmenn þátt á mótinu.  Bárður er númer 153 í styrkleikaröðinni en Björn númer 203. Mótið því augljóslega mjög sterkt með fjölda stórmeistara, þeirra stigahæstur Vladimir Fedoseev (2675). Stórmeistarar á mótinu alls 41 og titilhafarnir gríðarlega margir.

Í fyrstu umferð höfðu bræðurnir báðir svart og urðu að lúta í dúk. Bárður gegn IM Daniel Ramos Garcia (2461) en Björn gegn FM Siem Van Dael (2367).

Báðir hafa þeir hvítt í annarri umferð en þar fær Bárður IM Umut Ata Akbas (2446) en Björn fær FM Raem Sherman (2278) frá Ísrael.

- Auglýsing -