Þeir Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson taka þátt í lokuðum GM-flokki en Hilmir Freyr Heimisson teflir í lokuðum IM-flokki á SixDays mótinu í Búdapest. Í dag fór fram sjötta umferð og lítið hægt að setja út á okkar menn, ekki hægt að fá fleiri vinninga í hús!
GM-flokkur

Vignir og Aleksandr gerðu innbyrðis jafntefli í sinni skák í sjöttu umferð.
Vignir hefur nú 3 vinninga af 6 en Alekandr hefur 2 vinninga.
IM-flokkur

Hilmir vann sigur í sinni skák í IM flokknum gegn WCM Vikram Anishka (1712) frá Indlandi. Hilmir sýndi mikla þolinmæði og var ekkert að flýta sér. Hann fékk mikla yfirburði á svörtu reitunum í miðtaflinu og naut þess greinilega að laga stöðuna hægt og rólega uns hann mátaði efnilegan andstæðing sinn í lokin.
Hilmir hefur 3,5 vinning af 6 mögulegum.
Á morgun er tvöföld umferði í báðum flokkum.
















