Einbeittar Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Lenka Ptacnikova við taflið í kvennaflokki EM í Svartfjallalandi. — Ljósmynd/Heimasíða EM í Budva

Mótsstaðan á Evrópumóti landsliða sem lauk í Budva í Svartfjallalandi sl. mánudag var harðari en á síðustu ólympíuskákmótum; af níu landskeppnum í opna flokknum tefldi íslenska sveitin sjö sinnum við mun stigahærri andstæðinga svo munaði tæplega 90 elo-stigum að meðaltali í hverri einustu viðureign. Sigur hafðist gegn Norðmönnum í 3. umferð og síðan lögðum við Dani í 8. umferð, 2½:1½. Þetta voru bestu úrslitin því það er alltaf gaman að vinna Dani og það hafðist með góðri baráttu. Lokaspretturinn var góður því að í þremur síðustu umferðum mótsins tapaði íslenska sveitin ekki skák.

Í hinni óformlegu keppni Norðurlandaþjóða urðu Íslendingar í 2. sæti á eftir Norðmönnum en Magnús Carlsen dró þessa frændur okkar að landi með besta árangri allra keppenda Evrópumótsins, hlaut 6½ v. af 8 mögulegum. Ísland hlaut 9 stig af 18 mögulegum og varð í 16.-24. sæti af 38 þátttökuþjóðum en var skipað í 29. sæti við upphaf móts.

Serbar, sem hlutu 15 stig, jafnir Þjóðverjum, voru úrskurðaðir sigurvegarar og Evrópumeistarar eftir stigaútreikning. Þar skipti miklu máli að Guðmundur Kjartansson náði jafntefli í síðustu skák mótsins, 111 leikja baráttu, og jók með því við stigatölu Serba sem við mættum í 1. umferð. Guðmundur hafði einnig teflt síðustu skák 8. umferðar gegn Dönum en sú skák varð 136 leikir. Í báðum tilvikum náði hann að verjast með kóng og hrók gegn kóng, hrók og riddara.

En snúum okkur þá að viðureigninni við Dani en þar tefldi Hjörvar Steinn Grétarsson flókna og skemmtilega baráttuskák:

EM landsliða, Budva, Svartfjallalandi; 8. umferð, 1. borð:

Jonas Buhl Bjerre – Hjörvar Steinn Grétarsson

Spænskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3 Bc5 5. c3 d5

Dálítið glannalegt við fyrstu sýn en hefur gefist vel.

6. exd5 Dxd5 7. Bc4 Dd6 8. Rbd2 Bf5 9. b4 Bb6 10. Rg5 0-0 11. Rde4 Rxe4 12. dxe4 Dxd1+ 13. Kxd1 Bg4+ 14. Kc2 h6 15. Rf3 Bxf2 16. Hf1 Bb6 17. a4 a6 18. Rh4!?

Fram að þessum leik hafði þetta allt saman sést áður. Leikurinn er þó fyrsti valkostur „Stockfish“.

18. … Re7 19. Ba3 Rc8 20. a5 Rd6 21. Bb3 Be3 22. b5

(Sjá stöðumynd 1)

Hér var mikil spenna í stöðunni. Svartur leikur „best“ 22. … Hfd8 sem dugar til tafljöfnunar. En Hjörvar valdi „lakari“ leik.

22. … Be6!? 23. b6 c5 24. Hf3?

Hann átti best 24. Bxe6 fxe6 25. Rf3. Nú hrifsar svartur til sín frumkvæðið.

24. … Bxb3+ 25. Kxb3 Bg5! 26. Bxc5 Rxe4 27. Bxf8 Hxf8 28. Rf5 g6! 29. Rg3 Rd2+ 30. Kc2 Rxf3 31. gxf3 f5 32. He1 Bf6

Svartur er peði yfir en hvítu peðin á drottningarvæng eru stórhættuleg.

33. Re2 Kf7 34. c4 Hc8 35. Kb3 Hc5 36. Rc1 Hxa5 37. Rd3

37. … e4! 38. fxe4 Bd4

Hindrar framrás c-peðsins.

39. e5 g5 40. e6 Ke7 41. h4 g4 42. Kb4 Bxb6 43. Rf4 Bc7 44. Rg6 Ke8 45. e7 g3 46. c5 g2 47. Rf8 Ha2 48. Kb3

48. … He2!

– og hvítur gafst upp.

Hjörvar hlaut 4½ v. af 8 mögulegum, árangur sem reiknast upp á 2.630 elo. Hannes Hlífar, sem tefldi á 2. borði, var greinilega þreyttur eftir HM öldunga á Ítalíu og náði sér ekki á strik en vann þó góðan sigur í viðureigninni við Norðmenn. Hann hlaut aðeins 1½ v. af 6. Vignir Vatnar Stefánsson fékk 3 v. af 8, Guðmundur Kjartansson hlaut 3½ v. af 7 og Hilmir Freyr Heimisson 3 v. af 7 mögulegum.

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 25. nóvember 2023

- Auglýsing -