Mynd frá Jólaskákmóti Vinaskákfélagsins 2022

Hið árlega Jólaskákmót Vinaskákfélagsins fer fram næsta mánudag 4 desember í Vin Dagsetur, Hverfisgötu 47. Mótið hefst klukkan 13:00 stundvíslega.

Mótið er 6 umferðir með 7 mínútur á klukkuna.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Skákdómari verður Róbert Lagerman en mótstjóri er Hörður Jónasson.

Boðið verður upp á kaffi og Vöfflur að hætti Inga Hans í hléi.

Glæsileg verðlaun verða í boði og vonast stjórn Vinaskákfélagsins að skákmenn fjölmenni á þetta glæsilega skákmót.

  1. Bikar + Gull peningur + Skákbók + Konfektkassi.
  2. Silfur peningur + Skákbók + Konfektkassi.
  3. Brons peningur + Skákbók + Konfektkassi.

Aukaverðlaun er konfektkassi.

Allir velkomnir.

Hægt er að sjá hverjir hafi skráð sig hér:  Jólaskákmót Vinaskákfélagsins 2023

 

Skráning er á heimasíðu félagsins: http://www.vinaskak.is/jolaskakmot-vinaskakfelagsins-2023/

Einnig hægt að skrá sig á staðnum.

Mætið tímanlega.

Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -