Það er óhætt að segja að öll spjót standi á FIDE þessa dagana, ýmis mál hafa komið upp undanfarið sem menn hafa verið óánægðir með. Það nýjasta er að keppandi á HM í atskák var sektaður fyrir skóbúnað!
Anna Maja-Kazarian er hollensk landsliðskona, FIDE meistari og streymari. Hún hefur teflt á Reykjavíkurskákmótinu og er líkleg að mæta til leiks í ár. Hún teflir nú á Heimsmeistaramótinu í at- og hraðskák í Samarkand í Úzbekistan.

Á öðrum keppnisdegi beið hennar „óvæntur glaðningur“. Anna var sektuð fyrir skóbúnað, skór hennar taldir vera of líkir einhverskonar íþróttaskóm og því var hún sektuð um 100 evrur og hótað því að verða ekki pöruð í mótinu ef hún bætti ekki úr þessu. Miðann og skóna má sjá í færslu hennar á samfélagsmiðlinum X hér að neðan.
Update: I got fined. This is absolutely ridiculous. @FIDE_chess please revert this warning. My shoes are NOT sports sneakers https://t.co/3VlGwMtaPp pic.twitter.com/vRcGlMgeFh
— Anna-Maja Kazarian (@AMKazarian) December 27, 2023
Tristan Tate, bróðir hins alræmda Andrew Tate og sonur alþjóðlega meistarans heitins Emory Tate svaraði henni og bauðst til að borga allar sektir!

Mikil umræða er um þetta á X og öðrum samfélagsmiðlum og óhætt að segja að FIDE séu ekki að vinna sér inn „rokkstig“ sérstaklega eftir margt annað sem á undan er gengið!
Hér er önnur mynd þar sem skóbúnaðurinn sést betur…

Viðtal við Önnu frá fyrsta keppnisdegi:















