Íslandsmeistaramót kvenna í hraðskák fór fram í kvöld í húsakynnum Skáksambands Íslands. Olga er núverandi Íslandsmeistari í skák og nældi sér því í tvennuna í kvöld. Olga hafði nokkra yfirburði og leyfði aðeins tvö jafntefli, kom í mark með 7 vinninga af 8 en tefld var tvöföld umferð.

Baráttan um silfrið var á milli landsliðskvennana Hallgerðar og Jóhönnu Bjargar. Hafði Jóhanna betur og munaði þar mestu um að Iðunn Helgadóttir náði að leggja Hallgerði að velli en Jóhanna og Hallgerður skildu jafnar innbyrðis. Silfrið kom því í hlut Jóhönnu en bronsið fór til Hallgerðar.

Stóra spurningin er því hvort að Olga nái „þrennunni“ á Selfossi á laugardaginn en Vignir Vatnar er einmitt að berjast að ná sama árangri!
Skákstjórn var í höndum Gunnars Björnssonar














