Heimsmeistarinn í at- og hraðskák Magnus Carlsen (2818) er enn í efsta sæti á Heimsmeistaramótinu í atskák í Samarkand í Úzbekistan. Magnus leyfði þó þrjú jafntefli á degi tvö og almennt var mikið um jafntefli. Magnus er með 7 vinninga af 9 ásamt „Slóvenanum“ Vladimir Fedoseev og hinum ólseiga Yu Yangyi sem er ótrúlega oft traustur á þessum mótum, nartar í toppinn en vinnur þó aldrei.
Samantekt frá fyrsta keppnisdegi:
Magnus kom sér í fína stöðu strax í 6. umferð. Þá lagði hann Vidit að velli en sá indverski vann sig einmitt inn í Áskorendamótið á dögunum. Magnus sýndi enn og aftur hvar hann er sterkastur, að kreysta vinninga úr jafnteflislegum endatöflum.
Aftur riddaraendatafl og aftur 0.00 í tölvunum. Eins og gegn Khismatullin í gær er peðastaðan mjög svipuð en aftur er hvíta h-peðið veikt. Hvítur virðist þó halda í horfið hér í 36. leik. Hér upphófst norska svæðanudd.
Niðurstaðan var að Vidit fór á taugum hér í 53. leik og gaf h-peðið með 53.Rd2? Vidit hefur orðið eitthvað hræddur í vörninni. Riddari hans er bundinn við að valda h-peðið og kóngurinn er bundinn við að valda f2-peðið. Hann hefur e.t.v. talið að Magnus hefði getað farið af stað með kónginn á drottningarvæng og ekki viljað bíða og sjá. Eftirleikurinn varð nokkuð auðveldur fyrir Magnus eftir þetta.
Aðrir gerðu jafntefli á efstu borðum og Magnus því efstur eftir 6 umferðir með 5,5 vinning en margir með 5 vinninga.
Yu Yangyi náði í skottið á Magnusi í næstu umferð þegar hann vann sína skák en Magnus gerði tiltölulega stutt jafntefli með hvítu gegn Arjun Erigaisi.
Þeir mættust innbyrðis í áttundu umferðinni. Yangyi náði að vinna peð en Magnus hafði alltaf pressu í staðinn og var aldrei í vandræðum og jafntefli samið þegar komið var í hróksendatafl.
Fedoseev náði þeim tveim að vinningum með því að leggja Erigaisi að velli. Leið Erigaisi í Áskorendamótið er því orðin aðeins erfiðari.
Þeir Fedoseev, Carlsen og Yu Yangyi gerðu svo allir jafntefli í níundu umferðinni og leiða eins og áður sagði með 7 vinninga af 9. Magus var hinsvegar allt annað en sáttur enda hafði hann vænlegt endatafl gegn Þjóðverjanum Vincent Keymer
Magnus is furious with himself at giving away a big advantage despite having 9 minutes more on the clock than Keymer! #RapidBlitz pic.twitter.com/MEJ49N6b5T
— chess24.com (@chess24com) December 27, 2023
Pakkinn með 6,5 er svo stór og ljóst að úrslit munu varla ráðast fyrr en í lokaumferðunum á morgun.

Magnus fær svart á Fedoseev í 10. umferðinni en Yu Yangyi þarf að kljást við MVL.
Í lokin má benda á að þetta bara gerðist í áttundu umferð!
Kvennaflokkur
Í kvennaflokki er Anastasia Bodnaruk efst eftir 8 umferðir með 7 vinninga. Koneru Humpy frá Indlandi og Mo Zhai frá Kína hafa 6,5 vinning.
Anastasia Bodnaruk is the sole leader of the Women's Rapid with just 3 rounds to go tomorrow! https://t.co/mrh41D4g2p #RapidBlitz pic.twitter.com/O0n17gZbFZ
— chess24.com (@chess24com) December 27, 2023
Atskákinni lýkur á morgun með fjórum umferðum í opnum flokki og þremur umferðum í kvennaflokki.
- Beinar útsendingar á lichess (atskák) | Kvennaflokkur
- Beinar útsendignar á lichess (hraðskák) | Kvennaflokkur
- Kvennaflokkur
- Beinar útsendingar á chess.com (atskák)
- Chess-Results atskákin | Kvennaflokkur
- Chess-Results hraðskákin| Kvennaflokkur
- Saga Heimsmeistaramótsins í atskák
- Saga Heimsmeistaramótsins í hraðskák
















