Landsliðsflokkur Skákþings Íslands 2024 verður haldinn í Mosfellsbæ 16.-28. apríl nk. Mótsstaður verður Íþróttamiðstöðin Kletti (Golfskálinn við Hlíðarvöll). Allir þeir 12 skákmenn sem fengu boðið hafa þegið það. Flokkurinn er því fullskipaður.
Eftirtaldir taka þátt.
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2530) – skákstig
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2498) – landsliðsflokkur 2023
- GM Helgi Áss Grétarsson (2477) – skákstig
- GM Héðinn Steingrímsson (2477) – skákstig
- GM Vignir Vatnar Stefánsson (2464) – landsliðsflokkur 2023
- GM Jóhann Hjartarson (2460) – boðssæti
- GM Guðmundur Kjartanssn (2452) – landsliðsflokkur 2023
- GM Bragi Þorfinnsson (2397) – áskorendaflokkur 2023
- IM Hilmir Freyr Heimisson (2376) – ungmennameistari 2023
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2362) – boðssæti
- WIM Olga Prudnykova (2241) – Íslandsmeistari kvenna 2023
- CM Bárður Örn Birkisson (2213) – áskorendaflokkur 2023
Meðalstig eru 2412 skákstig.
- Auglýsing -















