Kvika eignastýring og Brim verða aðalstyrktaraðilar Reykjavíkurskákmótsins 2024 sem fram fer í Hörpu 15.-21. mars. Auk áðurnefnda fyrirtækja styður Reykjavíkurborg venju samkvæmt myndarlega við mótið.
FIDE, Chessable og Chess.com styðja auk þess við mótshaldið.
Við viljum færa þessum aðilum sérstakar þakkir fyrir! Þó enn sé meira en 2 mánuðir í mót eru nú nærri 200 keppendur skráðir til leiks. Gera má ráð fyrir að keppendur verði í kringum 400 eins og í fyrra. Spennandi nöfn munu bætast við á keppendalistann á næstunni.
- Auglýsing -















