Gauti Páll Jónsson fer með himinskautum þessa dagana og er efstur á Skákþingi Reykjavíkur þegar einungis tvær umferðir eru eftir. Gauti lagði Bárð Örn Birkisson að velli í toppuppgjöri með snarpri lokafléttu. Dagur Ragnarsson og Ingvar Wu Skarphéðinsson frestuðu sinni skák vegna veikinda Ingvars.
Gauti valdi leik í sjaldgæfari kantinum 3…e5 gegn Rossolimo afbrigði Bárðs í Sikileyjarvörninni. Snemma í miðtafilnu fékk Bárður gott frumkvæði á kóngsvæng og staða Gauta varð passíf. Gauti þétti varnarmúrinn og náði nokkrum uppskiptum og var líklegast búinn að jafna taflið rétt eftir 30. leik. Bárður var þá orðinn tímanaumur og hleypti Gauta skyndilega í hálfgert „Blitz-krieg“ á kóngsvæng og snörp árás Gauta tryggði sigur.
Dagur og Ingvar frestuðu sinni skák eins og áður sagði en Hilmir fékk vinning gegn Adam sem var staddur erlendis.

Björn Hólm Birkisson náði að vinna með svörtu gegn Jóhanni Ragnarssyni. Jóhann fórnaði peði í byrjuninni og fékk myljandi sókn en var sleginn skákblindu með hartnær unnið tafl.
24.Dh4?? sneri skákinni við á svipstundu. Annaðhvort gleymdi Jóhann að taka á e8 fyrst sem er góður leikur, eða skákblindan var sú að svartur getur tekið á e6 með kóng…sem er einmitt eini leikurinn sem ekki tapar í stöðunni!

Kristján Örn náði í góðan sigur gegn Júlíusi. Kristján fékk mátsókn með betri stöðu og kláraði dæmið.
Helstu úrslit 7. umferðar

Svörtu mennirnir voru drjúgir í þessari umferð, vægast sagt!

Gauti stendur vel að loknum sjö umferðum enda teflt við þrjá stigahæstu menn mótsins. Dagur eða Ingvar geta náð honum í frestaðri skák
Svipmyndir úr umferðinni (Una Strand)

Áttunda umferðin fer fram næstkomandi miðvikudag.
- Mótsfrétt með tímamörkum, verðlaunum, tiebreaks o.fl.
- Skákir á livecloud
- Skákir á lichess
- Mótið á chess-results
















