Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í síðsutu viku mættu Friðrik Ólafsson og Guðmundur G. Þórarinsson í þátttinn.

Þátturinn Við skákborðið er að þessu sinni tvöfalt lengri en vanalega. Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar eru báðir fyrir löngu orðnir þjóðþekktir menn. Friðrik Ólafsson er fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák og var einn allra sterkasti skákmaður heims á sínum tíma. Hann er fyrrverandi forseti Alþjóðaskáksambandsins FIDE og fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis og því æðsti embættismaður þess. Guðmundur G. Þórarinsson er verkfræðingur og fyrrverandi alþingismaður. Hann var forseti Skáksambands Íslands þegar skákeinvígi aldarinnar var haldið í Laugardalshöll árið 1972 á milli þeirra Spasskís og Fischers.

Efni þessa þáttar er fyrst og fremst skákin, eðli hennar og uppruni. Þróun skáklistarinnar og byltingarkenndar breytingar og kannski síðast en ekki síst þróun mannlegrar hugsunar. En hvað er skák og hvar er hún upprunnin? Kristján Örn dró sig að mestu í hlé og bað þá Friðrik og Guðmund um að taka spjall og skyggnast inní þessa hulinsheima listagyðjunnar. Í lok þáttarins syngur 7. heimsmeistarinn í skák (1957-1958), Vasily Smyslov lagið Stenka Razin (Volga, Volga) ásamt karlakórnum í Tilburg („La Renaissance“). Skákborðið, platan og Staunton taflmennirnir á myndinni á milli þeirra Guðmundar og Friðriks er gjöf til Friðriks frá kúbanska byltingarleiðtoganum Fidel Castro eftir Ólympíuskákmótið í Havana á Kúbu árið 1966.

Hér fyrir neðan má hlusta á þáttinn

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

 

- Auglýsing -