Þrír efstu menn á Íslandmsót öldunga 2023

Íslandsmót öldunga 2024 (65+) fer fram í húsnæði Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi, samhliða Íslandsmóti kvenna, dagana 5.-11. febrúar nk.

Keppnisrétt eiga allir skákmenn 65 ára og eldri (fæddir 1959 eða fyrr).

Sex skákmenn taka þátt og í fyrstu umferð mætast:

  • Kristján Örn Elíasson (1812) – Bragi Halldórsson (2051)
  • Þór Valtýsson (1901) – Ögmundur Kristinsson (1938)
  • Páll G. Jónsson (1829) – Björgvin Víglundsson

Björgvin hefur titil að verja.

Tengill á beinar útsendingar verður birtur fyrir umferð.

Umferðartafla

Frí er 8. og 9. febrúar svo að menn geti jafnframt tekið þátt Íslandsmóti 50 ára og eldri.

  1. Mánudagurinn, 5. febrúar, kl. 18
  2. Þriðjudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
  3. Miðvikudagurinn, 7. febrúar, kl. 18
  4. Laugardagurinn, 10. febrúr, kl. 14
  5. Sunnudagurinn, 11. febrúar, kl. 14

Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki

Verðlaun

  1. 50.000 kr.
  2. 30.000 kr.
  3. 20.000 kr.

Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri en jafnir í verðlaunsætum. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.

- Auglýsing -