Íslandsmót kvenna 2024 fer fram í húsnæði Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi, dagana 5.-11. febrúar nk.
Teflt verður í tveimur flokkum. Annars vegar í landsliðsflokki kvenna. Þar eiga keppnisrétt allar skákkonur sem hafa náð 1600 skákstigum eða meira. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Íslandsmeistari kvenna árið 2024. Hins vegar í áskorendaflokki. Hann er opin fyrir allar skákkonur sem ekki hafa náð 1600 skákstigum. Sá flokkur hefst á laugardaginn
LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA
Átta skákkonur taka þátt og teflar 7 umferðir – allar við alla.
Í fyrstu umferð sem hefst kl. 18 mætast
- Iðunn Helgadóttir (1636) – Guðrún Fanney Briem (1587)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1990) – Olga Prudnykova (2241)
- Elsa María Kristínardóttir (1860) – Lenka Ptácníková (2082)
- Tinnna Kristín Finnbogadóttir (1831) – Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1710)
Olga hefur titil að verja.
Umferðartafla
- Mánudagurinn, 5. febrúar, kl. 18
- Þriðjudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
- Miðvikudagurinn, 7. febrúar, kl. 18
- Fimmtudagurinn, 8. febrúar, kl. 18
- Föstudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
- Laugardagurinn, 10. febrúar, kl. 14
- Sunnudagurinn, 11. febrúar, kl. 14
Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki
Verðlaun
- 150.000 kr.
- 90.000 kr.
- 60.000 kr.
Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2025 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Búdapest í september 2024.
Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunsætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.
Skráningarfrestur er til 31. janúar kl. 23:59
ÁSKORENDAFLOKKUR KVENNA
Allar skákkonur með minna en 1600 skákstig hafa keppnisrétt.
Verður teflt um helgina 10-11. febrúar. Tefldar verða sex umferðir og hefst taflmennska kl. 11 báða dagana.
Tímamörk verða 30+30
Verðlaun
- Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 20.000
- Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 15.000
- Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 10.000
Skráningarfrestur er til 8. febrúar kl. 23:59


















