Íslandsmót 50 ára og eldri fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur dagana 8.-9. febrúar nk. Tefld atskák – en ekki kappskák. Birnukaffið verður opið!
Keppnisrétt eiga allir skákmenn 50 ára og eldri (fæddir 1974 eða fyrr).
Tefldar verða atskákir með tímamörkunum 15+3.
Tefldar verða 7 eða 9 umferðir eftir fjölda þátttakenda.
Endanleg ákvörðun um umferðarfjölda verður tekin að loknum skráningarfresti.
Þátttökugjöld eru kr. 3.000. Hægt er að leggja inn á reikning SÍ, 101-26-12763, kt. 580269-5409, eða greiða með posa á skákstað við upphaf móts.
Umferðartafla
Með fyrirvara um fjölda keppenda.
- Umferð 1-4 Fimmtudagurinn, 8. febrúar, kl. 18.00
- Umferð 5-9 Föstudagurinn, 9. febrúar, kl. 18.00
Verðlaun
- 30.000 kr.
- 15.000 kr.
- 10.000 kr.
Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri en jafnir í verðlaunsætum. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.
Skráningarfrestur hefur verið lengdur og er til 6. febrúar kl. 23:59
Ef mótið gengur vel í ár er líklegt að það verði haldið áfram með þetta – hvort sem fyrirkomulagið yrði áfram það sama. Þess má geta að aðalhvatamaður þessa móts, Þorsteinn Þorsteinsson, stóð fyrir óformlegri könnun þar sem niðurstaðan var atskák í ár.
















