
Ísfirski FIDE-meistarinn Guðmundur Gíslason kom sá og sigraði á Íslandsmóti 50 ára og eldri sem fram fór 8. og 9. febrúar. Gummi sem kom sérstaklega höfuðborgarinnar vegna mótsins, varði titilinn, sem hann vann fyrir 10 árum síðan, sem var í fyrsta og eina skipti sem mótið hefur verið haldið þar til nú.
Gummi hlaut átta vinninga í umferðunum níu. Gerði aðeins tvö jafntefli á móti Magnús Pálma Örnólfssyni og gegn Rúnari Sigurpálssyni í lokaumferðinni.
Bolvíkingurinn, Magnús Pálmi , tók einmitt annað sætið og Akureyringurinn Rúnar það þriðja eftir oddastigaútreikning. Landsbyggðarmenn tóku því öll verðlaunasætin!
Jafnir Rúnari í þriðja sæti en með lægri oddastig voru Róbert Lagerman, Ægir Páll Friðbertsson (enn einn Vestfirðingurinn) og Baldur A. Kristinsson.
Tefld var atskák (15+3). Góður andi sveif yfir mótsstað og er greinilegt að þetta mót er komið til að vera. Birnukaffi var opið og var vinsælt. Þorsteinn Þorsteinsson var hugmyndsmiðurinn á bakvið mótið og á mikinn þátt í því hvað margir tóku þátt. Daði Ómarsson var skákstjóri og gerði það vel.