Olga Prudnykova virðist orðin ansi líkleg til að verja Íslandsmeistaratitil sinn í kvennaflokki eftir sigur gegn Lenku Ptacnikovu í 5. umferð Landsliðsflokks kvenna í kvöld. Það var langur dagur í Siglingaklúbbnum Ými. Dagurinn hófst snemma á frestaðri skák Iðunnar og Tinnu og almenn séð var þetta góður dagur hjá yngstu keppendunum í flokknum.

Iðunn Helgadóttir hóf daginn á því að mæta Tinnu Kristínu Finnbogadóttur í frestaðri skák. Iðunn byrjaði mótið á heppnissigri gegn Guðrúnu í 1. umferð og í kjölfarið komu nokkrar skákir undir getu. Í þessari skák sýndi hún hvað í henni býr og tefldi mjög flotta „pósaskák“. Tinna fékk eilítið erfiða stöðu eftir byrjunina og Iðunn nýtti sér það til fulls með peðaframrás á drottningarvæng sem skilaði tveimur peðum í heimanmund. Góð skák hjá Iðunni!

Tinna tefldi betur í seinni umferðinni en þar var hún með Jóhönnu Björg „í köðlunum“. Báðar tefldu hratt, og kannski full hratt á köflum! Tinna hefur oft gott auga fyrir sóknar/kraftataflmennsku og hún setti Jóhönnu í nokkur vandræði með góðum e5/h4 leikjum. Tinna fékk réttu hugmyndina en valdi ekki réttu leikjaröðina.

Tinna lék 19.hxg6+ fxg6 og þá 20.Rc5. Jóhanna náði að redda sér með 20…Bf4 sem hefði einmitt ekki verið í boði ef Tinna hefði leikið 19.Rc5! sem vinnur lið! Öldurnar lægðu nokkuð fljótt eftir þessar sveiflur og jafntefli varð niðurstaðan.

Næst til að klára var Olga gegn Lenku. Olga er oft í ákveðum hliðarvaríöntum og lendir stundum í vandræðum „í tölvunum“ með svörtu. Í þessari skák náði hún nokkuð snemma undirtökunum og sleppti ekki takinu og bætti stöðuna jafnt og þétt. Lenka átti næstum því skemmtilega patt-möguleika í lokin en Olga hafði séð lengra og sá við þeim möguleikum.

Mikilvægur sigur hjá Olgu sem fer langleiðina með að tryggja henni titilinn.

Guðrún Fanney tefldi virkilega góða stöðulega skák í umferð dagsins gegn Elsu Maríu. Guðrún fékk mikið sjálfstraust við að ná góðu jafntefli gegn Lenku í gær og nýtti þann meðbyr til fulls og náði sér í góðan sigur. Biskup Elsu endaði grafinn lifandi á a1-reitnum og Guðrún Fanney fann flottar stöðulegar „manúveringar“ til að nýta sér það. Riddarinn á e4 var algjört stórveldi og för kóngurinn í blokkeringu á c6 reitnum og í kjölfarið tvöföldun á g-línunni var mjög menntað plan hjá Guðrúnu, vel gert!

Síðasta skákin til að klárast var hörkuskák hjá Veroniku Steinunni með hvítt gegn Iðunni. Báðar hafa þær átt góða spretti á mótinu og gaman að sjá Veroniku aftur við skákborðið. Skák þeirra var flókin og þung. Veronika hafði lengi frumkvæðið en Iðunn gaf ekki færi á sér. Eftir goða vörn komst Iðunn í endatafl peði yfir. Líklegast hefði Veronika átt að halda með biskup gegn riddara en Iðunn fann flotta taktíska leiki með riddaranum til að setja hvítan í smá klípu. Peðið taldi í endann í hörkuskák!

Úrslit 5. umferðar

Svörtu mennirnir gáfu vel í 5. umferðinni og yngstu keppendurnir bitu vel frá sér!

Staðan:

Olga er komin með 1,5 vinning í forskot og á sigurinn nánast visan. Jóhanna og Lenka berjast að öllum líkindum um 2. sætið og mætast í lokaumferðinni!

Sjötta umferðin af sjö fer fram á morgun og hefst klukkan 14:00. Mótinu lýkur á sunnudaginn.

 

- Auglýsing -