Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í síðustu viku mættu Gunnar og Ingvar í Skipholtið
Eins og áður hjá þeim félögum var farið um víðan völl í spjalli um skákina, sagðar skákfréttir frá viðburðum hér heima og erlendis, spáð í spilin um hver verður næsti heimsmeistari í skák, spilað hljóðbrot þar sem Magnus Carlsen syngur rapplag sem kallast Hvem Stjal Spenolen eða Hver stal andlitskreminu með rapparanum Mr. Pimp-Lotion og margt fleira. Sjá slóð: Magnus Carlsen is Singing His Rap Song!
Stóra spurningin sem ekki náðist að svara í þættinum er: Verður Hans Moke Niemann umdeildasti skákmaður heims með á Reykjavíkurskákmótinu 2024? Það kemur í ljós í kvöld eða á morgun en á meðan við bíðum.
Hér fyrir neðan má hlusta á þáttinn.













