Við gerum vikuna í skák upp á sunnudögum hér á Skak.is. Nú tökum við fyrir vikuna 26. febrúar -3. mars.
- Vikan hófst sem fyrr á Skákkvöldi TG þar sem boðið var upp á nýjung, tefldar voru atskákir. Stefnan er að hafa atskákir mögulega einu sinni í mánuði og þá jafnvel með fyrirlestri á undan. Fjöldi skákmanna endaði bróðurlega í efsta sæti með 2 vinninga af 3 mögulegum.
- 32 skákmenn mættu til leiks á Þriðjudagsmót TR þar sem Arnar Milutin Heiðarsson og Venesúelabúinn Roberto Osorio Ferrer enduðu báðir með 4,5 vinning
- Öðlingamótið hélt áfram síðastliðinn miðvikudag. Þorvarður F. Ólafsson og Kristján Örn Elíasson skildu jafnir og eru efstir með 2,5 vinning ásamt Davíð Kjartanssyni.

- Gauti Páll Jónsson mætti spjall til Kristjáns „Við Skákborðið“ og mest var rætt um tímaritið Skák.
- Þorsteinn Magnússon varð efstur á fimmtudags-hraðskákmóti TR
- Íslandsmót Skákfélaga hófst á fimmtudeginum með keppni í úrvaldsdeild
- Þeir Benedikt Baldursson og Hallgrímur Steinsson enduðu efstir og jafnir með 9 vinninga af 11 mögulegum á Skákþingi Vestmannaeyja.
- Skemmtilegt mót er nú í gangi í Prag þar sem ungir og spennandi skákmenn etja saman hesta sína. Abdusattorov, Pragganandhaa, Vidit, Gukesh og fleiri!
- Sterkt Elítumót er einnig í gangi í Kína. Giri, Dubov og Erigaisi ásamt sterkum Kínverjum.
- Íslandsmót Skákfélaga lauk um helgina. Fjölnismenn náðu í sögulegan sigur, Breiðablik vann sig upp í Úrvaldsdeild og Dímon komu sáu og sigruðu í 4. deildinni.
Karjakin virðist vera algjörlega að mála sig út í horn í skákheiminum með gegndarlausum stuðningi við hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu.
Karjakin playing chess against Russian???????? soldiers on the ruins of what used to be the Ukrainian???????? city of Avdiivka. pic.twitter.com/Yp263COHSY
— Peter Heine Nielsen (@PHChess) March 3, 2024
- Stórfurðulegt tíst kom frá FIDE í vikunni þar sem þeir kölluðu eftir flýtimeðferð á vegabréfsáritunum fyrir áskorendamótið sem fram fer í apríl.
Urgent visa appeal to the Canadian Government regarding the FIDE Candidates Tournament
The most prestigious tournament in the chess world, the FIDE Candidates, which will determine the challengers for the World Champion title in both the Open and Women’s Categories, is set to… pic.twitter.com/uZSDuomkNX
— International Chess Federation (@FIDE_chess) March 1, 2024
- Netverjar veltu því fyrir sér hvort Vishy Anand hefði verið rænt!
Why does it look like we took @vishy64theking hostage pic.twitter.com/8AbcepZ6ra
— Alexandra Botez (@alexandrabotez) February 28, 2024
- Anand svaraði um hæl!
At the Airport!
My Kidnappers, let me go.@alexandrabotez @itsandreabotez pic.twitter.com/rENwtwGRsT— Viswanathan Anand (@vishy64theking) March 1, 2024


















