Guðmundur Kjartansson er efstur fyrir lokaumferðina ásamt fimm öðrum á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu í boði Kviku eignastýringar og Brim. Guðmundur lagði fyrrverandi sigurvegara mótsins, Baskaran Adhiban að velli með svörtu mönnunum og er í dauðfæri á að enda efstur!

Guðmundur hafði svart gegn Adhiban og hafði vaðið fyrir neðan sig og beitti Berlínarvörninni traustu. Fín byrjun ef menn ætla að halda fengnum hlut en sjaldan kemur dúfa úr hrafnseggi!  Guðmundur lenti samt óvænt snemma í vandræðum og 13. leikur Adhiban, riddari frá d4 til b5 gaf hvítum nokkuð betra tafl samkvæmt tölvum.

Tölvurnar voru hrifnar af hvítu stöðunni hér.

T.d. 17.h3 og svartur er í vandræðum að finna góða leiki. Leikur Adhiban 17.Rd5+? var hinsvegar slakur þar sem svartur getur verið kaldur og leikið 17…Kd7 og allt í einu þarf hvítur að hafa sig allan við! Adhiban var greinilega ekki sáttur við gang mála og eyddi miklum tíma í stöðunni. Hann endaði á að leika 18.Bg5?? sem var alls ekki góður. Guðmundur hefði átt að taka peðið á g4 með mun betra tafl en valdi 18…Kc6 sem heldur einnig góðri stöðu.

Guðmundur hékk á manninum en Adhiban spriklaði. Spriklið fjaraði loks út og Guðmundur hélt einbeitingu og fann best leikinn í 40. leik

40…Hg2+ 41.Kh4 Bf5 og litla vindmyllan klárar dæmið fyrir svart! Glæsilegur sigur hjá Guðmundi.

Hannes lenti lengst af í erfiðri vörn gegn stigahæsta manni mótsins, Bogdan-Daniel Deac á öðru borði. Eftir mikinn bbarning komst Hannes í hróksendatafl sem er jafntefli með réttri taflmennsku. Lengi leit út fyrir að Deac væri ekki að finna neina tilraun…en þá kom afleikur

48…Kg8?? er tapað. Hvítur nær að tengja peðin og eftirleikurinn er auðveldur. Leiðin í jafntefli var ekki auðveld. Aðeins 48…Ha5 og 48…h5 ná jafntefli. 48…h5 er ansi erfitt að sjá og byggir t.d. á 48…h5 49.Kf4 Ha4+ 50.Ke4 Ha8 (eini leikurinn!) 51.Kg5 Hg8+ 52.Kh4

Hér myndi svartur eiga 52…Kg7! 53.Kxh5 Kf6 og svartur vinnur annað peðið þar sem 54.g4 er sjálfsmát og staðan því dautt jafntefli eftir aðra leiki.

Fjölnismaðurinn Paulius veitti Jóhanni skráveifu með því að snúa á hann í lokin. Jóhann hafði ef til vill örlítið betra úr byrjuninni og framan af en Paulius náði hættulegri færum í miðtaflinu en náði ekki að láta kné fylgja kviði. Jóhann var við það að sleppa en þá kom fingurbrjótur.

54.h5?? er slakur þar sem eftir 54…Dh1 er svartur komin með skæðar máthótanir. Kóngur Jóhanns lenti á vergangi en náði ekki að forðast mátnetið.

Héðinn Steingrímsson átti líka séns á að komast í hóp efstu manna en slíðraði sverðin snemma gegn Emre Can. Aðrir Íslendingar áttu ekki séns fyrir umferðina.

Björn Þorfinnsson var nýbúinn að komast inn í skákina gegn andstæðingi sínum.

Hér hefði 30…Kg7!! bjargað deginum. Þessi í stað kom 30…Dg6?? og nú var það Björn sem lenti í „Fréttablaðsfléttu“ 31.Hxe5! Hxe5 32.Bf6+ og svartur er mátaður.

Blikinn ungi Engilbert Eyþórsson náði skemmtilegri fléttu gegn Bjarna Sæmundssyni.

18…Hg5!! greinlegt að mynstrin eru vel kennd í Kópavoginum og Engilbert nýtir sér vindmylluþemað og fórnar drottningunni. 19.Rxg6?? 19.g3 eða 19.f3 voru betri leikir og staðan er í dýnamísku jafnvægi Hxg2+ 20.Kh1 Hxf2+ 21.Kg1 Hg2+ 22.Kh1 Hg3+ og svartur vinnur allt liðið til baka með vöxtum.

Sigur Guðmundar fleytir honum í hóp sex efstu manna fyrir lokaumferðina. Guðmundur mætir Íslandsvininum Sebastian Maze í lokaumferðinni og með heppni og réttum úrslitum gæti Guðmundur hampað sigri á Reykjavíkurskákmótinu. Sætur er sjaldfenginn matur og vonandi fær Guðmundur bragð af sigri á þessu sögufræga móti!

Sex efstir og jafnir fyrir lokaumferðina og Guðmundur í þeim hópi! Héðinn Steingrímsson er eini Íslendingurinn þess utan sem eygir einhvern möguleika á að enda í topp 10.

Í lokaumferðinni mætast Suleymenov og Deac, Paulius mætir Praveen og Guðmundur fær aftur svart, nú gegn Maze. Allt getur gerst, Maze gæti lagt mikið í sölurnar til að reyna að ná sigri á mótinu! Ritstjórn spáir jafntefli á efsta borði en spurning hvað Paulius gerir á öðru borði!

Myndaalbúm 8. umferðar (Hallfríður Sigurðardóttir)

Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -