Björn Hólm - Svona mæta menn á sviðið!

Björn Hólm Birkisson er einn efstur í Áskorendaflokki eftir sigur gegn  Ingvari Wu Skarphéðinssyni í fjórðu umferð Áskorendaflokks. Fyrir umferðina voru Björn og Ingvar einir efstir með fullt hús vinninga.

Björn fékk í raun mjög lítið úr byrjuninni en Ingvar náði algjörlega að jafna taflið. Mistök Ingvars komu ekki fyrr en seint í endataflinu og Björn nýtti sér mistökins til fulls!

Bendikt Þórisson missti af dauðfæri gegn Bárði Erni. Benedikt skákaði á e7 og g6 og tók þráskák en hefði getað leikið Bg6 í 38. leik og lítið er hægt að gera í mátinu á h7!!

Arnar Milutin fann e.t.v. ekki bestu leiðina til að sigla vinningnum heim gegn Lenku á 3ja borði en að sama skapi hafði Arnar aldrei verra tafl og vann í raun sanngjarnan sigur!

Gauti Páll vann mikinn seiglusigur gegn hinum unga Örvari Hólm. Taflið var jafnt í alltnær 50 leiki en reynsla Gauta hafði betur að lokum!

Á fimmta og sjötta borði virtist sagan vera sú sama…sá er vann átti undir högg að sækja!

Úrslit voru að mestu eftir bókinni þó að Arnar, Kristján og fleiri hafi ekki verið sammála!

Úrslit

Staðan

Björn er kominn í góða stöðu en hvorki fleiri né færri en sjö skákmenn elta hann vinningi á eftir!!

Í 5. umferð mætast þeir bræður Bárður Örn og Björn Hólm. Baráttan á milli skákmanna með 3 vinninga af 4 verður grjóthörð!

Umferðirnar á virku dögunum hefjast klukkan 18:30.

 

 

 

 

 

 

- Auglýsing -