Aleksandr Domalchuk-Jonasson stendur nú í ströng á Heimsmeistaramóti U20 sem fer fram í Gujrathi á Indlandi. Í dag fór fram fjórða umferð þar sem Aleksandr gerði jafntefli í sinni skák og hefur 3 vinninga eftir 4 umferðir.
Aleksandr hafði svart gegn þýska alþjoðlega meistarann Marius Fromm (2465) í 4. umferðinni. Upp kom spænskur leikur og náði Aleksandr að jafna taflið í miðtaflinu þó hvítur hefði alltaf örlítið meiri sénsa. Upp kom að lokum hróksendatafl þar sem hvítur hafði umframpeð en enga leið til sigurs og hélt Sasha jafnteflinu auðveldlega.
Aleksandr er í grennd við efstu menn og teflir á fimmta borði á morgun þegar hann mætir ungverska stórmeistaranum Gleb Dudin (2532) og hefur Aleksandr hvítu mennina.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results
- Skákir á lichess
- Auglýsing -
















