Þeir Adam og Josef Omarssynir hófu í dag leik á sterku og þéttu opnu móti sem fram fer í Krakow í Póllandi. Keppt er í tveimur flokkum og eru þeir skráðir í B-flokkinn. Í A-flokki eru nokkrir sterkir stórmeistarar á borð við Jules Moussard og Alexander Fier, báðir Íslandsvinir.
Í B-flokki þar sem Adam og Josef tefla eru Botez-systurnar mættar til leiks. Alexandra hefur farið mikinn undanfarið og unnið tvö mót af svipuðum styrkleika og B-flokkurinn undanfarið.
Skv. fréttaritara Skak.is náðu þeir bræður nokkuð auðveldum sigrum í fyrstu umferð. Báðir höfðu þeir svart. Adam lagði að velli Wladislaw Makosiej (1599) en Josef vann gegn Julia Michniak (1509).

Tvöföld umferð bíður þeirra bræðra á morgun. Adam hefur hvítt gegn pólskum mótherja, Miroslaw Chmielewski (1736) og Josef hefur líka hvítt gegn Ignacy Avramiuk (1493).
















