Þeir Adam og Josef Omarssynir tefldu í dag tvöfalda umferð á alþjóðlega mótinu sem fram fer í Krakow í Póllandi. Keppt er í tveimur flokkum og taka þeir þátt í B-flokki ásamt hinum frægu Botez-systrum. Gengið hefur verið gott, Adam hefur 3 af 3 og Josef er með 2,5 af 3 og jafntefli gegn stigahærri skákmanni.

Skv. fréttaritara Skak.is hefur Adam unnið nokkuð auðvelda sigra og ekki verið lengi að því! Í fyrri umferð dagsins vann Adam gegn pólskum mótherja, Miroslaw Chmielewski (1736). Í þriðju umferð var Adam hársbreidd frá þvi að vera á sýningarborum en þá lagði hann annan Pólverja Jan Wolak (1790).

Josef byrjað daginn á að leggja Ignacy Avramiuk (1493) að velli með hvítu. Hann fékk svo góðan andstæðing í 3. umferð en þá gerði hann jafntefli við Pawel Kulig (2015).

Í fjórðu umferðinni mætir Adam næststigahæsta keppanda flokksins Dariusz Klimaszewski (2118) og hefur hvítt. Josef hefur svart gegn úkraínska skákmanninum Oleksii Rozhok (1959).

- Auglýsing -