Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2492) stóð sig best Íslendinganna á opna mótinu HSG Open í Hilversum í Hollandi. Vignir kom í mark taplaus í öðru sæti. Um var að ræða algjört hraðmót, sex kappskákir á þremur dögum! Við upphaf dags hafði Vignir 4 vinninga af fjórum mögulegum eins og landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson (2388). Næstur af Íslendingunum kom Dagur Ragnarsson (2333) með 3 vinninga og svo Gauti Páll Jónsson (2069) með tvo vinninga.

Vignir hóf daginn á stuttu jafntefli með svörtu gegn stórmeistaranum Lucas van Foreest (2505). Lucas hafði hvítt og bauð snemma friðarpípu enda mun betri pípa en stólpípa!

Öllu meiri barátta var í skák Hilmis gegn stórmeistanum Liam Vrojlik (2536). Hilmir tefldi af krafti með svörtu, fórnaði peði snemma og fékk hættuleg færi. Sá hollenski gaf mann en fékk í staðinn þrjú peð og biskupaparið. Skákin varð löng, ströng og strategísk flókin en á endanum varð niðurstaðan jafntefli og sá hollenski líklega heppnari og sáttari með þau úrslit!

Vignir og Hilmir því báðir þarna með 4,5 vinning af 5. Dagur lagaði sína stöðu með því að leggja andstæðing Vignis úr 4. umferð að velli. Dagur hafði svart en þessi skák varð algjör einstefna og sigurinn aldrei í hættu.

Gauti vann einnig í fimmtu umferðinni, hans annar sigur í röð. Lagði hann Rolinder den Heijer (1947).
Í lokaumferðinni hafði Vignir hvítt gegn stórmeistaranum Tomas Beerdsen (2513). Beitti Vignir skemmtilegu og athyglisverður afbrigði með Ha3 snemma í byrjuninni. Hollenski stórmeistarinn virtist vita sitt um afbrigðið og lenti ekki í vandræðum sem menn gera oft útaf He3+ í vissum stöðum. Miðtaflið varð nokkuð jafnt en svo fórnaði Beerdsen manni en vann hann svo til baka með skemmtilegri taktík. Þá var of lítið lið eftir á borðinu og jafntefli óumflýjanlegt.
Hilmir fékk hvítt gegn Lucasi á efsta borði. Lucas náði að leggja Hilmi að velli og tryggja sér sigur á mótinu. Hilmir tefldi að vanda hvasst og dýnamískt en að þessu sinni var Lucas vandanum vaxinn og fann flottar leiðir til að verjast og endaði á að komast í endatafl peði yfir og með betri kóng, ekki ósvipað endatafl og gegn Degi fyrr á mótinu.
Dagur varð að lúta í dúk í sinni skák. Andstæðingur hans tefldi stíft upp á endataflið og náði góðu endatafli með mun betri kóng og vann góðan sigur.
Gauti náði svo að vinna sína skák og sinn þriðja sigur í röð eftir brösuga byrjun.

Vignir endaði í öðru sæti og fór taplaus í gegnum mótið. Hilmir tapði í lokaumferðinni og endaði með 4,5 vinning í 6-14. sæti en varð í 7. sæti á stigum. Dagur endaði með 4 vinninga en var efstur þeirra á stigum og endaði í 15. sæti, Gauti fékk jafnmarga vinninga en endað í 26. sæti á stigum.

















