Teflt í Tyrklandi gæti verið heiti á Tinnabók en það vill þó einfaldlega svo til að Aleksandr Domalchuk-Jonasson hóf í dag taflmennsku á alþjóðlegu móti þar. Eins og í fyrra virðast íslenskir skákmenn ætla að verða ansi iðnir við kolann í sumar!

Aleksandr tekur þátt í 10. útgáfu af Cesme Open sem fer fram í samnefndri borg í Tyrklandi. 75 keppendur taka þátt og eru allir með yfir 2000 elóstig. Aleksandr er númer 15 í styrkleikaröðinni en stigahæstur er úkraínski stórmeistarinn Vitaly Bernadskiy (2563).

Aleksandr mætti tyrknesku landsliðskonunni Hayale Isgenderovu (2103) en hún reyndist okkur einmitt erfið á EM landsliða í fyrra en þar fékk hún 6,5 vinning úr 8 skákum og lagði Jóhönnu Björgu að velli.

Aleksandr fékk aðeins betra tafl úr Katalan-byrjuninni en erfitt var að finna leiðir til að bæta stöðuna og fór svo að staðan einfaldaðist full mikið. Aleksandr hafði vissulega biskupaparið en þar sem öll peðin voru samhverf á sama væng var í raun lítill hagur í parinu og Isgenderova hélt jafnteflinu nokkuð auðveldlega.

Smá svekkjandi úrslit en Aleksandr hristir það vonandi af sér og hressist í leiðinni en hann hefur verið að glíma við smá slappleika undanfarna daga.

Í 2. umferð á morgun hefur Aleksandr svart gegn tyrkneskum CM Emre Kirilmaz (2195).

- Auglýsing -