Vignir Vatnar Stefánsson (2492) og Hilmir Freyr Heimisson (2388) eru með fullt hús eftir 4 skákir á HSG Open í Hilversum í Hollandi. Með þeim í för eru Dagur Ragnarsson (2333) sem tapaði sinni einu skák í 4. umferð og Gauti Páll Jónsson (2069) sem er að fara á þetta mót í fimmta sinn!

Titilhafarnir byrjuðu vel á fyrsta degi og höfðu fullt hús. Þeir héldu dampi í 3. umferðinni í morgun!

Vignir hafði svart gegn Bram Klapwijk (2226). Sá hollenski tefldi heldur máttlítið gegn sikileyjarvörninni og stýrði skákinni í Philidor-vörn með skiptum litum. Vignir fékk mjög þægilegt tafl en fór kannski aðeins of geyst í sínar aðgerðir og Hollendingurinn fékk betri stöðu með sterkt biskupapar og berskjaldaðan kóng Vignis.

Vignir náði að verjast og komast í endatafl skiptamun yfir sem var samt erfitt þar sem hvítur hafði enn gríðarsterka biskupa. Vignir slapp með skrekkinn í 49. leik þegar hvítur varði ekki biskupaparið sitt og Vignir fékk loks unnið endatafl.

Hilmir þurfti líka að hafa mikið fyrir sínum sigri gegn Paul Hummel (2157). Hilmir með svart var aldrei í vandræðum en gekk illa að fá færi. Hann náði gjörsamlega að kreysta allt úr endataflinu sem var mjög jafnteflislegt með mislitum biskupum. Mikill seiglusigur!

Það er ekki oft sem Íslendingar hafa mætt skákmönnum frá Afghanistan en það gerði Dagur í 3. umferðinni. Dagur fékk þá hvítt gegn Asefi Zaheeruddeen (1962) sem skartar FIDE meistaratitli með „svæðisbundnu ívafi“.

Sá afghanski gaf skiptamun full auðveldlega í drottningarlausu miðtafli fyrir litlar bætur. Í raun var þetta bara spurning um tækni eftir það.

Gauti gerði jafntefli í 3. umferðinni gegn Elysa Feng (1957) og fékk sér svo kaffi og gluggaði í góða bók!

Fjórða umferðin gekk nokkuð vel eins og sú þriðja. Dagur var nú kominn upp á annað borð og tefldi upp fyrir sig gegn stórmeistaranum Lucas van Foreest (2505). Áður hafði Dagur lagt Nanne van Foreest og kom Lucas fram hefndum fyrir van Foreest fjölskylduna.

Dagur virtist veikja stöðu sína of mikið í miðtaflinu með hvítu og Lucas nýtti sín færi og veikari kóngsstöðu hvíts. Fyrsta tap titilhafanna á mótinu en andstæðingurinn erfiður og verðugur.

Vignir náði í ótrúlega auðveldan sigur í fjórðu umferðinni gegn David Madularea (2114) sem var að eiga gott mót fram að þessu.. Hafði Vignir hvítt og leitaði í smiðju Björns Þorfinnssonar og tefldi „Pýramída-kerfið“ í fyrsta skipti. Jón Viktor fór vel yfir þetta í nýlegri bók sinni og nýtti Vignir sér það í undirbúningi sem hefði varla getað gengið betur! Sigur í aðeins 16 leikjum! Uppgjöfin kannski full snemma á ferð en greinilegt var að Vignir hafði mölbrotið sjálfstraust andstæðings síns með því að leika h5 undireins og var hann greinilega sannfærður um að staðan væri mun verri en hún var!

Hilmir náði einnig í að því er virtist nokkuð auðveldan sigur með hvítu gegn Rik Van Rootselaar (2111). Hilmir tefldi af krafti að vanda og hnitmiðaðir leikir hans beygðu Hollendinginn niður í aðeins 25 leikjum.

Gauti lagði Thorn Zwamborn (1972) að velli og lagaði sína stöðu á mótinu.

Mótinu lýkur á morgun, sunnudag, með tvöfaldri umferð eins og hina dagana. Nú verður róðurinn erfiðari. Vignir hefur svart gegn stórmeistaranum Lukas van Foreest (2505) og Hilmir hefur svart á stórmeistann Liam Vrojlik (2536). Þessar skákir eru á tveimur efstu borðunum. Dagur mætir andstæðingi Vignis úr þriðju umferðinni og Gauti fær enn einn 1900-stiga Hollendinginn.

Vignir og Hilmir eru efstur ásamt Lukas með fullt hús 4 af 4. Dagur er í 11. sæti með 3 vinninga. Gauti hefur svo 2 vinninga í 58. sæti.

- Auglýsing -