HM öldungasveita hófst í dag í Krakow í Póllandi. Opið alþjóðlegt mót fór fram í Krakow á dögunum þar sem Adam og Josef Omarssynir tóku þátt. Greinilega nóg um að vera í Krakow!

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:
- Helgi Ólafsson
- Jóhann Hjartarson
- Margeir Pétursson
- Jón L. Árnason
- Þröstur Þórhallsson
Íslenka liðið teflir í flokki 50+ en einnig er teflt í flokki 65+ á mótinu en Ísland á ekki fulltrúa þar. Alls taka 31 sveit þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!
Í fyrstu umferðinni í dag mætti íslenska liðið kvennasveit Ungverjalands. Þær ungversku eru númer 19 í stigaröðinni og með 2042 í meðalstig.

Jóhann var hvíldur í þessari viðureign.

Helgi fékk hvítt á efsta borði. Helgi tefldi rólega og vandað gegn Grunfelds-vörn þeirrar ungversku. Snemma í miðtaflinu var ljóst að Helgi var að tefla gegn illa stöddum riddara á b6 reitnum. Riddari þessi átti erfitt með að finna gott hlutverk og þegar sú ungverska loks reyndi að laga hann með því að færa hann út í horn og á c7 reitinn þá lenti svartur í krossleppun og riddarinn féll.
Margeir hafði svart á öðru borði og tefldi sikileyjarvörn. Margeir fékk þægilegra miðtafl með góða blokkeringu og til langtíma var frípeð hans hættulegra. Margeir náði svo að búa til hættulegt frípeð á a-línunni og virtist vinningurinn bara spurning um smá raðtækni.
Jón L. hafði hvítt og fékk gríðarlega þægilegt drottningarlaust miðtafl. Þrátt fyrir engar drottningar gat Jón farið í kóngssókn og sú ungverska lagði niður vopn þegar hún var að tapa liði.
Þröstur hafði svart á 4. borði. Upp kom sikileyarvörn og var Þröstur strax með kveikt á taktíska-radarnum!
12…exf4 13.Bxf4 Rxc2! og svartur vinnur peð útaf skákinni á b6 sem vinnur riddarann til baka. Sigurinn varð svo nokkuð auðveldur í kjölfarið.

Fínn skyldusigur hjá íslenska liðinu, ekki sjálfgefið að ná 4-0 þó stigamunurinn sé þó nokkur. Bæði Bandaríkjamenn og Ítalir missti t.a.m. hálfan vinning niður í fyrstu umferðinni.
Í 2. umferð mæta okkar menn Þýskum klúbbi frá Lubeck sem er númer 12 í stigaröðinni.
















