Vignir að tafli á HM U20 árið 2023 Mynd. David Llada

Vignir Vatnar Stefánsson virðist í algjöru banastuði í České Budějovice í Tékklandi þar sem skákhátíð fer nú fram og Vignir teflir ásamt íslensku stórmeisturunum Hannesi Hlífari Stefánssyni og Helga Áss Grétarssyni . Helgi og Hannes eru saman í flokki (A) og svo er Vignir einn í hinum flokknum (B).

Vignir hafði svart í 4. umferðinni og mætti austurríska FIDE-meistaranum Julian Leitgeb (2328). Vignir fékk þægilegt miðtafl með biskupaparið og gat sótt til vinnings nokkuð áhættulaust.

Varnir Austurríkismannsins fóru að leka eftir 47.Re2? þar sem c-peðið fellur. Hvítur varð að finna 47.Ra2! til að geta allvega spriklað í vörninni. Ef þá 47…Bxc2 kemur 48.Rb4

Fínn sigur hjá Vigni!

Hannes gerði jafntefli við slóvakíska alþjóðlega meistarann Filip Haring (2497). Hannes hafði svart og náði skemmtilegri taktík í miðtaflinu sem vann peð

27…Bxf2! sem hvítur svaraði með 28.Kh1 þar sem 28.Kxf2 Dc5+ og svo 29…cxb5 er gott á svart. Þrátt fyrir peðsvinninginn vantaði slagkraft í svörtu stöðuna og Hannes sættist á jafntefli í 44. leik.

Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson hefur ekki byrjað vel og tapaði í dag sinni annarri skák í röð, nú gegn þýska FIDE meistaranum Collin Colbow (2413).

Skákin var skrýtin, Helgi fékk mjög vænlegt miðtafl og stóð hartnær til vinnings með hættulega sókn og virka menn. Varnir svarts héldu en Helgi vann þó peð og komst í endtafl peði yfir.  Helgi missti þráðinn í tímahraki þegar hann veikt 3. reitaröðina með 40.f4? og svartur komst inn í skákina. Svörtu frípeðin reyndust svo sterkari í endataflinu. Óþarfa tap!

Hannes hefur nú 1,5 vinning eftir umferðirnar 4 en Helgi hefur 1 vinning í A-grúppunni. Vignir eins og áður sagði í banastuði og hefur 4 vinninga af 4 mögulegum!

Fimmta umferð hefst klukkan 14:00 á morgun og hægt að fylgjast með á lichess (sjá tengil að neðan) með því að velja rétta umferð og svo skipta milli A og B flokkanna eftir þörfum!

- Auglýsing -