Íslenska liðið á HM öldungasveita í Krakow í Póllandi tefldi gríðarlega mikilvæga viðureign við sterkt lið Englendinga. Fyrirfram voru þessi lið líkleg á mótinu, Englendingar Evrópumeistarar og númer tvö í stigaröðinni á mótinu en íslenska liðið í þriðja sæti.

Helgi Ólafsson hvíldi hjá íslenska liðinu en hann mætti einmitt Adams á síðasta HM og tapaði þá. Jóhann reyndi sig gegn ofurstórmeistaranum Adams en hjá Englendingum hvíldi Nigel Davies.

Adams gegn Jóhanni á efsta borði (Mynd: M.Livshitz)

Jóhann glímdi við Adams með svörtu og var við það að vinna sig úr pressunni sem hvítur fékk úr byrjuninni. Einn ónákvæmur leikur og Jóhann var skyndilega í smá klemmu. 15…g6?? reyndist afleikur.

Hér lenti Jóhann í sannkölluðu „djöflatrikki“ eins og menn kalla það. Hvítur á nefnilega 16.Rxg6! fxg6 17.De5! og svartur getur ótrúlegt en satt ekki valdað hrókinn á h8 þar sem 17…Hg8 er svarað með 18.Dxe6+

Þarna lendum við strax 0-1 undir þannig að mikið undir á hinum borðunum!

Þröstur lengst til vinstri, Jón Gunnar liðsstjóri fylgist með. (Mynd. M.Livshitz)

Þröstur steig þá upp á fjórða borði gegn Keith Arkell. Þröstur með hvítt fékk fínt tafl eftir Caro-kann og taktísk aðgerð Arkell í miðtaflinu gerði lítið annað en skilja Þröst eftir með biskupaparið og aðeins betra tafl. Það góða við biskupaparið er að hægt er að velja litina sem ráðist er á í stöðu andstæðingins og í þetta skiptið var hvítreitabiskup Þrastar örlagavaldur þar sem kóngsstaða Arkell var mjög veikt á hvítu reitunum. Fínn sigur hjá Þresti og staðan orðin 1-1

Gunnar og Jón Gunnar fylgjast með Margeiri (Mynd: M.Livshitz)

Margeir hafði hvítt gegn John Emms. Upp kom drottningarbragð og hvítur fékk ekki nægilega mikið. Í hróksendatafli náði Margeir að vinna peð en staðan var alltaf fræðilegt jafntefli og Emms hefur skrifað bækur um hróksendatöfl og gerði engin mistök!

Staðan nú 1,5-1,5

Þröstur lengst til vinstri þá Jón L og Margeir, Jón Gunnar liðsstjóri fylgist með. (Mynd. M.Livshitz)

Viðureignin réðist því á skák Jóns L. gegn Glenn Flear. Jón L. hafði svart og þegar staðan var orðin 1,5-1,5 var hann kominn með vænlegt endtafl, peði yfir. Skákin var löng og ströng og spennan mikil. Jón L. var kominn í nokkuð tímahrak og aftraði það honum líklegast frá því að finna bestu leiðirnar. Svartur hafði líklegast á tíma hartnær unnið tafl en Flear náði að verjast af hörku og loks vinna peðið til baka með steindauðu jafntefli.

2-2 að mörgu leiti ágætis úrslit en að sama skapi hefði verið ljónsterkt ef sigurinn hefði dottið. Ítalir unnu Bandaríkjamenn eilítið óvænt 2,5-1,5 og mætir íslenska liðið því ítalska í fimmtu umferðinni. Enn og aftur mikilvæg viðureign við Ítali á þessum mótum og ljóst að möguleikar liðsins munu ráðast í þeirri viðureign og viðureign við bandarísku sveitina.

Tvær umferðir eru um helgina og svo kemur frídagur!

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:

  1. Helgi Ólafsson
  2. Jóhann Hjartarson
  3. Margeir Pétursson
  4. Jón L. Árnason
  5. Þröstur Þórhallsson

Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 31 sveit þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!

- Auglýsing -