Vignir að tafli á HM U20 árið 2023 Mynd. David Llada

Vignir Vatnar Stefánsson (2500) vann sérlega glæsilegan sigur í sjöundu umferð á Leca Chess Open sem er opið mót í Portúgal. Vignir er enn í efsta sæti og í góðum sénsum.  Vignir er númer 3 í stigaröð á þessu 209 manna skákmóti. Auk Vignis eru með í för þeir Benedikt Briem (2148), Theodór Eiríksson (1638) og Eiríkur Orri Guðmundsson (1517). Vignir hafði 5 vinninga eftir fyrstu sex umferðirnar og honumst næstur var Benedikt með 4 vinning.

Sigur Vignis var sérlega glæsilegur. Hann stýrði svörtu mönnunum gegn G B Harshavardhan (2425) indverskum alþjóðlegum meistara. Vignir ákvað að beita hvössu og áhættusömu afbrigði, „Schliemann deferred“, en afbrigðið er yfirleitt teflt án þess að skjóta fyrst inn 3…a6. Praggnananadhaa beitti þessu sama afbrigði í einni skák á Áskorendamótinu með góðum árangri. Pragga lék 7…Ra5 en Vignir breytti útaf með 7…Bb7.

Vignir fórnaði peði í byrjuninni en fékk þess í stað biskupaparið og hættulega sóknarmöguleika.

Vignir hélt áfram að byggja upp sóknarstöðu með kröfugum leikjum og var svo tilbúinn í náðarhöggið þegar kallið kom.

23…Hxh3! og hvíta staðan hrynur. 24.gxh3 Hxf3 og hvítur sleppur ekki við mátið.

Benedikt var líka í beinni en hann fékk hvítt gegn pólskum alþjóðlegum meistara Stanislav Zylka  (2394). Benedikt tefldi traust í baráttuskák og jafntefli varð niðurstaðan.

Theodór tapaði gegn indverskum skákmanni, Akhilesh Nagare (2069) en Eiríkur náði sér í góðan sigur gegn Artur Lemos (1658).

Vignir hefur nú 6 vinninga og er jafn A.Kovchan á toppnum.  Benedikt hefur 4,5 vinning, Theodór 3,5 vinning og Eiríkur hefur 3 vinninga.

Vignir hefur hvítt gegn Kovchan í næstsíðustu umferð á morgun, mikilvæg skák þar á ferð!

- Auglýsing -